June 12

Ticket prices from

ISK 3,900

  ICEBOX   

  Stærsta boxmót ársins á Íslandi ICEBOX verður haldið aftur í sjöunda sinn föstudaginn 12.Júní og nú í nýjum sal í Ólafssal á Ásvöllum. Viðburðurinn hefur orðið flottari hvert sinn og þann 12.Júní verður allt lagt undir . Samkvæmt mörgum sem þekkja til er líklegt að ICEBOX sér orðinn stærsti viðburður í áhugamannahnefaleikum í evrópu. Það hefur selst upp á síðustu viðburði og engin hætta á öðru í þetta skiptið.  

  

Húsið opnar 18:00 og fyrsti bardagi hefst um kl 19:00. Aðalhluti bardaga kvöldsins hefst 20:30 og er í beinni útsendingu á Sýn sport og selt í streymi á Livey en fyrri hluti kvöldsins verður á vísi í beinni.

Miðagerðir:
Almennir miðar Bláa stúka 3.900: Sæti í bláu sætunum í körfuboltastúku, öll sæti með baki og með útsýni yfir hringinn, fyrstur kemur fyrstur fær gildir í þessi sæti en öll sæti með gott útsýni yfir viðburðinn

Almennir miðar í Rauða stúku 4.900kr: Sæti í rauðu sætunum í körfuboltastúku, öll sæti með baki og með útsýni yfir hringinn og meira fyrir miðju en bláa stúkan, fyrstur kemur fyrstur fær gildir í þessi sæti en öll sæti með gott útsýni yfir viðburðinn

Betri Stúkan: 5.900kr. Mjög takmarkað magn sæta í afmörkuðum auka stúkum beint fyrir aftan Ringside VIP sætin þar sem sætaröðin er hækkuð upp og horft beint yfir Ringside VIP sætin, afmörkuð sæti með baki fyrir hvern og einn. Þessir miðar hafa alltaf selst upp og gildir "fyrstur kemur fyrstur fær" í þessi sæti en öll þessi sæti eru á besta stað og öll mjög góð, þeir sem eru með miða í Betri stúku ganga inn á sama stað og Ringside VIP og sleppa við raðir.

RINGSIDE VIP :19.900kr Hér eru bestu sætin í húsinu, við hringinn og innifalinn matur á lúxus smáréttahlaðborði í lokuðum sal og óáfengir drykkir en allt þetta er einungis fyrir keppendur og þá sem sitja í RINGSIDE VIP. Þessir miðar hafa alltaf selst upp á síðastu viðburðum. Hér gildir einnig "fyrstur kemur fyrstur fær" en það eru einungis fá svona sæti í sölu og öll alveg upp við hringinn á öllum hliðum. Með þessum miðum er einnig sérinngangur bæði inn í Ásvallarhúsið sem og inn í keppnissalinn sjálfan.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger