Purrkur Pillnikk - Tónleikar á Vagninum - Flateyri

Vagninn, Flateyri

July 10

Ticket prices from

ISK 5,000

Purrkur Pillnikk - Tónleikar á Vagninum - Flateyri

Það er sannur heiður að tilkynna það að Purrkur Pillnikk ætlar að spila tónleika á Vagni allra landsmanna. Purrkinn þekkjum við öll og ef við þekkjum hann ekki, þá þekkjum við hann samt. Allir hafa heyrt þessi lög og þetta er besta hljómsveit sem Ísland hefur alið.

Ég ætla að vitna hér í strákana í Purrkinum.

"Við erum spenntir fyrir að spila á Lista Vestrinu í júlí því við höfum ekki komið á Vestfirði síðan 1981 og þá á Ísafjörð. Við þekkjum fólk sem hefur hlustað á okkur síðan þau léku sér með Playmo og verið með okkur á heilanum síðan. Það er uppáhalds fólkið okkar en allir forvitnir eru líka velkomnir. Enn ungur en! Hlökkum til að sjá ykkur!"

Vagninn var stofnaður ári eftir komu Purrksins á Vestfirði 1981 og hefur beðið hans síðan. Það eru þónokkur ár. En nú er biðinni að ljúka og nú skuluð þið kaupa ykkur miða áður en það verður uppselt.

Að fá svona hljómsveit á Vagninn er rosalegt. Þeir spiluðu tónleika í fyrra í Austurbæ og þar áður spiluðu þeir í Smekkleysu nokkur lög, þegar þeir gáfu út heildarsafn verka sinna "Orð fyrir dauða". Ég sem skrifa þetta var þarna og kleip mig oft, því þetta var óraunverulegt. Þvílíkir meistarar, þvílíkt band!

Tónleikarnir eru óbeint partur af listahátið sem haldin verður á Flateyri í um viku tíma. Alls kyns skemmtilegar opnanir verða daginn eftir og þar á meðal verður Einar Örn með sýningu í tankinum á Flateyri svo eitthvað sé nefnt. Það er því tilvalið að skella sér vestur, hlusta á Purrkinn og drekka í sig menningu í kjölfarið.

Það er 20 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger