Flesh Machine - The Fool útgáfutónleikar

Tónabíó, Skipholt 33

June 12

Ticket prices from

ISK 5,000

Flesh Machine - The Fool útgáfutónleikar

12. júní mun indie/alternative hljómsveitin Flesh Machine halda útgáfutónleika í stóra sal Tónabíó til að fagna sinni fyrstu breiðskífu, The Fool. Hljómsveitin hefur spilað víða um Reykjavík seinustu ár og hafa fengið viðurkenningu sem mest spennandi lifandi tónlistarflutningur sem að hefur komið úr tónlistarsenu landsins undanfarin misseri.


Nú fagnar hljómsveitin útgáfu fyrstu plötu með stæl með viðbættu bandi til þess að gera kvöldið eftirminnilegra. Með þeim munu post-pönk hljómsveitin BKPM og dans pop dúóið Kusk og Óviti hita upp sviðið.


Húsið opnar kl.19:00

Tónleikar byrja kl.20:00

Tónleikar klárast kl.23:00


Platan The Fool kafar inn í líf einstaklings í blóma lífsins sem er sífellt sín eigin hindrun er hann reynir að feta sig áfram í lífinu. Endurteknar slæmar ákvarðanir og ábyrgðarleysi leiða til spírals niður á við, í ákveðið sjálfskaparvíti. Hann trúir að heimurinn útvegi honum allt upp í hendurnar og horfir fram á við í blindni fyrir afleiðingum. Á tónleikunum verður varningur til sölu og verður hægt að forpanta vínyl af "The Fool" sem að hljómsveitin mun fá afhent í lok júní og mun persónulega keyra út til kaupenda.

Það er 20 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger