Sterkari út í lífið - Þegar skóladagurinn verður barátta

Hilton Reykjavík Nordica

September 26

Ticket prices from

ISK 12,500

Á þessu málþingi beinist athyglin að börnum með taugaþroskafrávik — þar á meðal ADHD, einhverfu, lesblindu, Tourette og DLD — hóp sem talinn er vera 15-20% barna. Rannsóknir sýna að þessi börn eru í aukinni hættu á álagi og áföllum og þurfa öruggt og skilningsríkt umhverfi til að dafna.

Markmið málþingsins er að efla skilning og fara yfir hagnýtar leiðir sem styðja við þessi börn í því umhverfi sem þau lifa og hrærast mest í — á heimili sínu, í frístundastarfi - en síðast en ekki síst í grunn- og framhaldsskólum þar sem áreitin geta verið margvísleg.

Verð við snemmskráningu 12.500
Einnig er hægt að kaupa miða í streymi

Dagskrá:

Tilfinningavandi og taugakerfi barna með taugaþroskaraskanir
Guðrún Ólafsdóttir, sálfræðingur  

Taugafjölbreytileiki, skólatengsl og tæknilausnir fyrir nám og starf  
Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir - stofnandi Harts og aðgengissérfræðingur

Ósýnilega baráttan: Sértækir námserfiðleikar og málþroskaraskanir
Guðrún Carstensdóttir, sálfræðingur

Mikilvægi samkenndar fyrir börn/unglinga með taugaþroskaraskanir og foreldra þeirra
Bryndís Einarsdóttir – Mjöll Jónsdóttir, sálfræðingar

Að styðja í gegnum áskoranir – ACT fyrir börn, unglinga og foreldra
Rúnar Helgi Andrason, sálfræðingur  



Fundarstjóri er Atli Már Steinarsson, fjölmiðlamaður.


Sterkari út í lífið er góðgerðarfélag sem rekið er af sjálfboðaliðum. Allur hagnaður rennur óskiptur til þess.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger