© 2026 Tix Ticketing
Tjarnarbíó
•
May 17
Ticket prices from
ISK 500




„Ég er eins og ég er – og svona rúlla ég“ er nýtt og persónulegt leikhúsverk eftir Fjölleikhúsið - leikhóp sem fæddist innan Fjölmenntar.
Í verkinu vinnum við, hópur fullorðins fólks með þroskahömlun, út frá Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og tengjum hann við okkar eigið líf og reynslu. Úr verða senur sem fjalla um það að flytja að heiman, bíða eftir húsnæði, verða ástfangin, vilja stofna fjölskyldu, fá tækifæri til náms og vinnu og um það hvernig það er að þurfa sífellt að sanna að við getum tekið eigin ákvarðanir.
Sýningin blandar saman húmor, tónlist, dansi og reynsluheim okkar.
Við segjum sögur sem eru bæði einstaklingsbundnar og samfélagslegar, sögur um frelsi, fordóma, vonir og réttinn til að vera við sjálf.
Þetta er sýning um lífið sjálft
Um að fá að tilheyra
Um að fá að vera nákvæmlega eins og við erum
Verið öll hjartanlega velkomin
Leikarar: Atli Már Haraldsson Zebitz, Alexandra Ósk Guðmundsdóttir, Árný Lára Hauksdóttir, Birkir Eiðsson, Daníel Ólafsson, Elías Aron Árnason, Elínborg Sigurðardóttir, Helena Dögg Arnardóttir, Hlynur Svansson, Hrannar Halldórsson Bachmann, Jordan Lazer Þórarinsson, Garðar Hinriksson, Geir Kristinn Þórðarson, Guðrún Sara Sigurðardóttir, Gunnar Gestsson, Lena Ósk Sigurðardóttir, Rebekka Sigurðardóttir, Sóley Björnsdóttir, Vaka Steinarsdóttir, Þórarinn Emil Magnússon
Handrit: Allur hópurinn
Tækni: Aron Martin Ásgerðarson
Leikstjórar: Margrét Pétursdóttir og Íris Stefanía Skúladóttir
Þrjú verð í boði - hver borgað eins og hentar

