OYAMA x SUPERSERIOUS x SPACESTATION í Tónabíó

Tónabíó, Skipholt 33

June 5

Ticket prices from

ISK 3,000

OYAMA x SUPERSERIOUS x SPACESTATION í Tónabíó

Oyama er Reykvísk hljómsveit sem spilar indí-skotið shoegaze rokk. Sveitin hefur vakið mikla athygli í gegnum árin fyrir hljóðheim sinn, kraftmikla tónleika og spilað út um allan heim. Sveitin gaf út sína seinni breiðskífu, Everyone Left, í lok 2024 við góðar undirtektir, en fyrir stuttu gaf sveitin út lagið The Bookshop og eru að vinna í nýju efni fyrir næstu breiðskífu.


---


Superserious er indie-rokk hljómsveit úr Garðabæ sem kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2021. Sveitin hefur verið nokkuð áberandi á íslensku tónlistarsenunni síðan þá; hún var meðal annars valin eitt af bestu nýju atriðunum á Iceland Airwaves árið 2022 og hefur átt lög í reglulegri spilun á bæði X-inu og Rás 2.

Tónlist þeirra mætti lýsa sem blöndu af melódísku indie-poppi og rokki. Árið 2024 gáfu þau út sína fyrstu breiðskífu, Seriously?, en sveitin er hvað þekktust fyrir lifandi og orkumikla spilamennsku á tónleikum.

Nýjasta smáskífan þeirra, „island full of deadbeats (..OR SOMETHING)“, af væntanlegri breiðskífu sveitarinnar, kom út í byrjun apríl við góðar undirtektir.

---

Hljómsveitin Spacestation var stofnuð árið 2021 og hefur verið að gera mjög góða hluti fyrir Íslenska rokktónlist og senu. Lög eins og “Í Draumalandinu” og “Loftið“ hafa notið mikilla vinsælda hjá landsmönnum á öllum aldri og er sveitin einnig þekkt fyrir kraftmikla lifandi flutninga og mikla stemningu á tónleikum sínum.

Tónleikar með Spacestation er eitthvað sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta framhjá sér fara.

Það er 20 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger