© 2026 Tix Ticketing

Salurinn
•
May 13
Ticket prices from
ISK 0




Tónleikaröðin Töframáttur tónlistar kveður eftir 30 ára óeigingjarnt starf í þágu tónlistar og samfélagsins með glæsilegum lokatónleikum í Salnum.
AÐGANGUR ER ÓKEYPIS
Verkefnið, undir stjórn Gunnars Kvaran sellóleikara, hefur um árabil fært tónlistina til fólks sem vegna veikinda, aldurs eða einangrunar á erfitt með að sækja tónleika. Tónlistin var lengst af flutt á Kjarvalsstöðum en undanfarin ár inni á stofnunum, heimilum á höfuðborgarsvæðinu. Einnig hefur hún verið flutt á fangelsum. Töframáttur tónlistarinnar hefur farið víða, skapað ómælda gleði og snert við mörgum.
Verkefnið er styrkt af Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.
Flytjendur:
Hallveig Rúnarsdóttir, sópran
Hallveig er ein ástælasta sópransöngkona landsins. Hún lauk námi frá Guildhall School of Music and Drama í London og hefur margsinnis verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna, en þau hlaut hún sem söngkona ársins árin 2013 og 2018.
Hún er þekkt fyrir tæran og fallegan róm og hefur sungið fjölda óperuhlutverka hjá Íslensku óperunni. Hallveig hefur verið sérstaklega virk í að frumflytja nýja íslenska tónlist og leggur mikla áherslu á ljóðasöng.
Hildigunnur Einarsdóttir, mezzósópran
Hildigunnur er mjög virk í íslensku tónlistarlífi, jafnt í kirkjutónlist sem á óperusviðinu. Hún nam í Reykjavík, Berlín og Hollandi og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2023 sem söngkona ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar.
Hildigunnur hefur sungið einsöng með Sinfóníuhljómsveit Íslands og komið fram með heimsþekktum listamönnum á borð við Yo-Yo Ma. Hún er einnig öflugur kórstjóri og kennari.
Guðrún Dalía Salómonsdóttir, píanóleikari
Guðrún Dalía er einn fremsti meðleikari landsins, sérstaklega þegar kemur að sönglist. Hún útskrifaðist frá Stuttgart í Þýskalandi og stundaði framhaldsnám í París.
Hún hefur gefið út geisladiska með sönglögum eftir Jórunni Viðar og Karl O. Runólfsson og er þekkt fyrir næman og blæbrigðaríkan leik. Guðrún kemur reglulega fram á tónleikaröðum eins og Tíbrá í Salnum og er lykilmanneskja í flutningi íslenskra tónbókmennta.

