Champagne og Búrgúndí í brennidepli: Dhondt-Grellet, PYCM og Simon Colin

Rannsóknarsetur Santé, Skeifunni 8

May 13

Ticket prices from

ISK 7,990

  Champagne og Búrgúndí í brennidepli: Dhondt-Grellet, PYCM og Simon Colin  

  Þann 13. maí næstkomandi blásum við til glæsilegs fræðsluviðburðar í rannsóknarsetri Santé í Skeifunni 8. Miðvikudagskvöldið er kjörinn tími til að fagna komandi frídegi og njóta lífsins með úrvals vínum frá tveimur af merkustu héraðum Frakklands: Burgundy og Champagne. Í brennidepli verða þrír framleiðendur sem hafa vakið mikla athygli og eftirvæntingu að undanförnu: Dhondt-Grellet: Rísandi stjarna í Champagne. Árleg framleiðsla nemur aðeins um 35.000 flöskum og eru engar málamiðlanir gerðar í framleiðslunni. Fjölskyldan notar hross í stað dráttarvéla á ekrunum til að hlífa jarðveginum og tryggja hámarksgæði. Pierre-Yves Colin-Morey: Nafn sem margir vínáhugamenn þekkja vel. Úr kjallara hans koma einhver vönduðustu og ljúffengustu hvítvín sem völ er á í dag. Simon Colin: Simon fetar í fótspor frænda síns og leggur ríka áherslu á að vínið endurspegli uppruna sinn (terroir). Hann notar lítið af nýrri eik og er þetta fjórði árgangur hans frá upphafi. Það er ljóst að hér er á ferðinni framleiðandi sem vert er að fylgjast með. Þetta verður einstök kvöldstund. Við smökkum eftirtalin vín: Dhondt-Grellet Les Terres Fines 1er Cru Dhondt-Grellet Roc Solare 2023 Pierre-Yves Colin-Morey Bourgogne Hautes Cotes de Beaune Blanc 2023 Pierre-Yves Colin-Morey Chassagne Montrachet Vielles Vignes 2023 Pierre-Yves Colin-Morey Saint-Aubin 1er Cru Champlots 2023 Pierre-Yves Colin-Morey Corton-Charlemagne Grand Cru 2023 Pierre-Yves Colin-Morey Chassagne-Montrachet 1er Cru Clos Saint Jean Rouge 2024 Simon Colin Bourgogne Blanc 2024 Simon Colin Santenay 1er Cru Les Gravieres Rouge Hlökkum til að sjá ykkur í Skeifunni!  

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger