Línuleg Saxskrá

Iðnó Jazz

May 24

Ticket prices from

ISK 2,500

Línuleg Saxskrá

Línuleg saxskrá: Saxófónsveit Tuma Torfasonar leikur þjóðþekkt útvarps- og sjónvarpsstef Trompetleikarinn Tumi Torfason bregður á leik í Iðnó með einstökum tónleikum. Bæði efnisskráin og hljóðfæraskipanin koma úr óvæntri átt en tónleikagestir mega eiga von á þeysireið um kunnulegar slóðir í okkar sameiginlegu þjóðarvitund. Tónlistin er landsmönnum öllum góðkunn en um er að ræða stef sem hafa verið samofin íslenskum hversdegi um árabil, nánar tiltekið þá lagabúta sem ramma inn línulega dagskrá Ríkisútvarpsins, bæði í sjónvarpi og útvarpi. Ekki beinlínis lög. Heldur stef. Hér gefst hlustendum til dæmis tækifæri til að heyra trompetstefið úr Silfrinu og saxófónstefið úr Landanum í lifandi flutningi. Aldrei að vita nema leikmenn gæði fleiri stef nýju lífi svo sem opnunarstef úr dagskrárliðum eins og morgunleikfiminni, veðurfréttum, smáauglýsingum að ógleymdum dánarfregnum og jarðarförum. Efnið verður tekið fyrir í lifandi útsetningum svo stefin munu bæði slá á nostalgíska strengi og bregða sér í nýjan búning svo þau verði jafnvel óþekkjanleg. Hljómsveit kvöldsins er ekki af verri endanum. Tumi hefur mannað afar óvenjulega besetningu hljóðfæra fyrir þetta sérstaka tilefni en glöggir tónleikagestir gætu tekið eftir að hér er fullkominn skortur á hljómahljóðfærum og algjör ofgnótt saxófóna. Það mætti halda að tríó Tuma Torfasonar, með þeim Birgi Steini Theódórssyni á kontrabassa og Magnúsi Trygvasyni Eliassen á trommusett, hafi fengið til liðs við sig heila saxófónseksjón eins og fyrirfinnast í hefðbundnum stórsveitum, en svo er ekki! Hér er á ferðinni afar óvenjuleg saxófónseksjón því hún inniheldur hinn sjaldgæfa bassasaxófón sem Haukur Gröndal mundar af sinni einstöku kostgæfni. Eftir því sem ofar dregur í tónhæð minnka jafnframt hljóðfærin en á þau spila þeir Björgvin Ragnar Hjálmarsson á baritón, Tumi Árnason á tenór, Sölvi Kolbeinsson á altó og Óskar Guðjónsson á sópran. Ef vel liggur á gæti sá síðastnefndi leikið áðurnefnt Landastef eins og hann gerði svo listavel um árið. Kvöldstund í Iðnó við Reykjavíkurtjörn sem hlustendur Rásar 1 og 2, áhorfendur RÚV og unnendur saxófónsins ættu ekki að láta framhjá sér fara! Tumi Torfason : trompet Óskar Guðjónsson : sópransaxófónn Sölvi Kolbeinsson : altósaxófónn Tumi Árnason : tenórsaxófónn Björgvin Ragnar Hjálmarsson : baritónsaxófónn Haukur Gröndal : bassasaxófónn Birgir Steinn Theodórsson : kontrabassi Magnús Trygvason Eliassen : trommur

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger