© 2026 Tix Ticketing

Afturámóti ehf
•
10. - July 17
Ticket prices from
ISK 4,990




Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks
Nú blása kaldir vindar í íslensku þjóðfélagi, samfélagsleg sundrung og áfengisverð aldrei hærra. Af því tilefni hefur höfundur Nauðbeygðrar Messu Nýrra Tíma ákveðið að auka þjáningar íslenskrar alþýðu enn frekar með öðru verki, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að koma í veg fyrir það af hálfu Eflingar og Ingu Sæland, félagsmálaráðherra. Helga Brá Brimar býður áhorfendum til fjarlæga konungsríkisins Moríu, þar sem konungurinn Belerfór hinn réttláti hefur látist af sárum sínum í hinu heilaga stríði. Því marserar Hatrammus hinn grimmi með allan her sinn í átt að Moríu til að setjast í tómt hásætið og eina von morískrar alþýðu er að Filippus krónprins taki við krúnunni. En til þess þarf hann að ganga í hjónaband, því lögin eru skýr; ógift konungsefni stendur til jafns við betlarasyni! Filippus getur hins vegar ekki hugsað sér að giftast enda plagar hann sönn, viðurstyggileg og leynileg ást sem meinar honum að taka við kvenkostum hins moríska heimsveldis. Bergamólíó kroppinbakur, göfugastur manna, fær það verkefni að gifta prinsinn áður en Hatrammus þrammar með máttugan her sinn inn um borgarhlið Moríu og blóð um götur rennur
Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks er skörp og ófyrirgefanleg ádeila á samtímann þar sem kaldhæðinn húmor og alvörugefni vegast á. Höfundur verksins hefur um árabil einbeitt sér að því að hlúa að og lækna veikgeðja líkama á Landspítalanum en hefur nú ákveðið að segja skilið við læknasloppinn og einbeita sér að langveikasta sjúklingi heilbrigðiskerfisins, þjóðarsálinni.
Ath. - Sýningin er bönnuð börnum undir 15 ára.
Höfundur
Einar Baldvin Brimar
Leikstjórn, tónlist og hljóðhönnun
Egill Andrason
Aðstoðarleikstjórn
Tómas Arnar Þorláksson
Dramatúrgar
Melkorka Gunborg Briansdóttir
Elínborg Una Einarsdóttir
Búningar
Helga Brá Brimar
Ljós
María Jóngerð Gunnlaugsdóttir
Leikarar
Arnór Björnsson
Freysteinn Sverrisson
Gugga í Gúmmíbát
Hólmfríður Hafliðadóttir
Mikael Emil Kaaber
Mímir Bjarki Pálmason
Níels Thibaud Girerd
Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Starkaður Pétursson
Vilberg Andri Pálsson

