© 2026 Tix Ticketing

Afturámóti ehf
•
2. - July 11
Ticket prices from
ISK 0




Besti vinur minn Súperman
Hin fimm ára Melkorka getur ekki beðið eftir því að byrja í skóla, það eina sem stendur í vegi fyrir henni er að hún kann enn ekki að lesa. Þarf maður ekki annars að vera búinn að læra það áður en skólinn hefst? En þegar ofurhetjan Súperman birtist óvænt og lofar henni að fá uppfylltar þrjár óskir hefst fjörið. Saman halda þau á vit ævintýranna og kynnast skrautlegum persónum sem kenna þeim ýmislegt um lífið. Hér er á ferðinni fjörug ný barnasýning með frumsömdum lögum eftir JóaPé og Króla og leikhópinn, tilvalin fyrir öll börn og fjölskyldur þeirra.
Sýningin er með afslöppuðu móti, þ.e. ljós og hljóðtækni eru í lágmarki, og hentar því vel fyrir unga leikhúsgesti.
Sýnd í Afturámóti í Háskólabíói nú í sumar.
Framleiðsla Afturámóti
Leikarar
Elva María Birgisdóttir
Helga Salvör Jónsdóttir
Hrafnhildur Ingadóttir
Katla Þórudóttir Njálsdóttir
Mímir Bjarki Pálmason
Salka Gústafsdóttir
Stefán Kári Ottósson
Leikstjórn
Guðjón Ragnarsson
Handrit, lög og textar:
Katla Þórudóttir Njálsdóttir
Kristinn Óli S. Haraldsson
Salka Gústafsdóttir
Sólbjört Sigurðardóttir
Stefán Kári Ottósson
Útsetning laga
Jóhannes Damian Patreksson
Dans- og sviðshreyfingar
Sólbjört Sigurðardóttir
Framleiðandi
Elva María Birgisdóttir
Veggspjald
Katla Þórudóttir Njálsdóttir

