Benjamín Gísli & Tuva Halse Kvartett

Iðnó Jazz

May 3

Ticket prices from

ISK 2,500

Benjamín Gísli & Tuva Halse Kvartett

Benjamín Gísli og Tuva Halse hafa á undanförnum árum verið að skapa sér nafn á norsku og evrópsku djasssenunni, en þau hafa unnið náið saman á fimm plötum með Bento Box Trio og Tuva Halse Quintet. Nú koma þau fram með íslenska hryndúóinu Birgi Stein Theodórssyni og Magnúsi Trygvason Eliassen og flytja frumsamin verk.


Fiðla og píanó er hljóðfæraskipan sem oftar er tengd klassískri tónlist, bakgrunni sem þau deila – en í þeirra höndum verður hún að einhverju nýju: norrænum djassi sem liggur á mörkum forms og frelsis, hefðar og nýsköpunar. Tónlistin hreyfir sig á grípandi slóðum, en býr jafnframt yfir viðnámi og óvæntum beygjum sem draga hlustandann inn í þeirra eigin tónlistarheim.

  • Tuva Halse - fiðla

  • Benjamín Gísli - píanó

  • Birgir Steinn Theodórsson - bassi

  • Magnús Trygvason Eliassen - trymbill


Tuva Halse

Tuva Halse hefur á skömmum tíma fest sig í sessi sem afgerandi rödd á norræna djasssviðinu. Árið 2024 var hún skipuð sendiherra Norwegian University of Science and Technology (NTNU) fyrir „leikandi ljóðræna, hugrakka næmni í tóni og tjáningu“, og hlaut styrk úr #huninvesterer-sjóði DNB. Í kjölfarið samdi hún verkið Air Music, sem var frumflutt á Kongsberg Jazz Festival með Håkon Kornstad sem gest. Á Oslo Jazzfestival 2025 vakti hún sérstaka athygli fyrir framkomu sína með Joshua Redman og Trondheim Jazz Orchestra – „Það var ekki stórstjarnan, heldur stórkostlegi varamaðurinn sem rafmagnaði troðfullan Cosmopolite á opnunarkvöldi Oslojazz í ár“ (Jazz i Norge).

www.tuvahalse.com


Benjamín Gísli

Benjamín Gísli Einarsson er einn af fremstu jazz píanóleikurum landsins og hefur vakið athygli fyrir sinn lagræna stíl, tilfinningaríka spilamennsku og fágaðan tón. Þótt hann sé djassmenntaður nær tónlist hans langt út fyrir þá skilgreiningu—hún sameinar áhrif frá klassískri tónlist, kvikmyndatónlist og spunakenndum köflum í anda Keith Jarrets. Fyrir Benjamín er píanóið ekki bara hljóðfæri, heldur leið til að kanna nýjar hugmyndir, miðla tilfinningum og skapa tengingar við áheyrendur. Tónlistin hans er síbreytileg, liggur einhvers staðar á milli forms og frelsis, hefða og nýsköpunar, og er alltaf í leit að einhverju nýju.

www.benjamingisli.com

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger