© 2026 Tix Ticketing

Hannesarholt
•
May 16
Ticket prices from
ISK 2,900




Á þessum tónleikum flytja þær Chrissie Telma Guðmundsdóttir, fiðluleikari og Jane Ade Sutarjo, píanóleikari, fjölbreytt prógramm úr kammertónlist rómantíska tímabilsins. Á efnisskránni eru verk eftir Edvard Grieg, Amy Beach og Gabriel Fauré, þar sem rík tónlistartjáning, ljóðrænar laglínur og kraftmikið samspil hljóðfæranna fá að njóta sín.
Jane Ade Sutarjo fæddist í Jakarta í Indónesíu. Hún hóf tónlistarnám ung að aldri, fyrst á píanó og síðar á fiðlu. Píanónámið hóf hún hjá móður sinni, Marthalenu Sugito en hlaut siðan kennslu hjá Vanda Tiodang og Fabiola Chianiago. Nám á fiðlu stundaði Jane hjá Grace Sudargo og Sharon Eng þar til hún flutti til Íslands haustið
2008. Hún hóf nám við Listaháskóla Íslands þar sem hún lærði á fiðlu hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og á píanó hjá Nínu Margréti Grímsdóttur og seinna hjá Peter Máté, en Jane er sú fyrsta sem hefði lokið einleikaranámi bæði á fiðlu og píanó frá Listaháskóla íslands.
Síðan Jane kom til Íslands hefur hún verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi. Hún hefur komið fram sem einleikari, meðleikari og í ýmsum kammertónlistarhópum. Hún spilaði einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2011 og hélt debut tónleikana sína í Salnum í febrúar 2014. Hún hefur einnig tekið þátt í píanókeppnum bæði hér á Íslandi og erlendis. Hún hlaut 1. sæti í fimmtu EPTA píanókeppninni á Íslandi árið 2012.
Eftir að hún útskrifaðist frá LHÍ árið 2012 hefur hún kennt á píanó auk þess að starfa sem meðleikari. Sumarið 2017 lauk hún meistaragráðu frá Tónlistarháskóla Noregs (Norges Musikkhøgskole), þar sem hún lærði hjá Jens Harald Bratlie og Kathryn Stott. Einnig lærði hún á fortepíanó hjá Liv Glaser.
Nú starfar hún sem meðleikari við Menntaskóla í Tónlist og Listaháskóla Íslands.
Chrissie Telma Guðmundsdóttir lauk B.Mus gráðu í fiðluleik frá Listaháskóli
Íslands vorið 2014 undir handleiðslu Auður Hafsteinsdóttir og Guðný
Guðmundsdóttir.
Sama ár hlaut hún styrk frá Fulbright Program og hélt til Bandaríkjanna þar
sem hún lauk M.M gráðu frá Arizona State University undir handleiðslu
prófessors Danwen Jiang.
Chrissie er fullgildur Suzuki-fiðlukennari með fimm kennslustig, lokið undir
handleiðslu Lilja Hjaltadóttir.
Hún hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna, og er nú fastráðinn meðlimur
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Hún heldur reglulega einleikstónleika víðs
vegar um landið.
Chrissie starfar sem Suzuki-kennari við Tónlistarskóli Kópavogs og er
jafnframt virk í íslensku tónlistarlífi með reglulegri þátttöku í tónleikum og
fjölbreyttum tónlistarverkefnum
Sónata fyrir fiðlu og píanó no.3 Op.45 eftir E.Grieg
I. Allegro molto appassionato
II. Allegretto espressivo alla Romanza
III. Allegro animato
Rómansa fyrir fiðlu og píanó Op.23 eftir A.Beach
Sónata fyrir fiðlu og píanó No.1 Op.13 eftir G.Fauré
I. Allegro molto
II. Andante
III. Scherzo: Allegro vivo
IV. Finale: Allegro quasi presto

