IÐNÓ

May 13

Ticket prices from

ISK 4,000

ÆGIR

Trommarinn og tilraunatónlistarmaðurinn Ægir Sindri fagnar útgáfu tíundu sólóplötu sinnar með veglegum tónleikum í Iðnó.

Platan, sem ber titilinn ‘conditioned by experience’, skeytir saman áhrifum úr tveimur heimum sem Ægir hefur lifað og hrærst í um árabil; harðkjarnapönkinu og þungarokkinu sem hann ólst upp í og svo tilraunatónlistinni sem hann hefur fengist við undanfarin ár, bæði sem einyrki og með öðrum. Harðkjarna orka, óreiða og sprengikraftur en með afar tilraunakenndri nálgun. Ægir nýtur liðsinnis stórrar hljómsveitar sem hjálpar honum að flytja verkið:Trommur: Ægir Sindri Bjarnason / Hrafnhildur Einars- og Maríudóttir / Sólrún Mjöll Kjartansdóttir / Magnús Skúlason / Helgi Pétur HannessonBassafeedback: Halla Kristjánsdóttir / Sigurlaug ThorarensenGítarfeedback: Hörður Jónsson / Kristján Alexander Rainers Friðriksson / Sturla Sigurðarson / Úlfur Hansson / Vigfús Þór Eiríksson / Þórir Georg JónssonRödd & hljóðnemafeedback: Ylfa Þöll ÓlafsdóttirHljóðbreytifetlar: Maria-Carmela RasoEinnig koma fram: John McCowen og Þóranna aka TroubleHljóð: Nikulás Yamamoto BarkarsonLjós: Óðinn Dagur Bjarnason
Ægir hefur tekið virkan þátt í tónlistarlífi Reykjavíkur frá unglingsaldri; sem trymbill í fjölda fjölbreyttra hljómsveita, en einnig sem upptökustjóri, útgefandi, hljóðmaður, tónleikahaldari og ýmislegt fleira.
Í janúar 2020 frumflutti hann einyrkjaverkefni sitt, þar sem hann kemur fram undir eigin nafni, yfirleitt einn og óstuddur. Síðan þá hefur hann gefið út níu plötur og haldið fjölda metnaðarfullra tónleika. Plöturnar fara um víðan völl; frá harðri, ryþmískri raftónlist yfir í blíða geimræna sveimtónlist og þaðan í furðuhljóða trommutilraunir og ýmislegt þar á milli. ‘conditioned by experience’ er hans tíunda sólóplata og má líta á hana sem eins konar uppgjör á tónlistar- (og lífs-)ferli hans hingað til.BRIDGES II - plata Ægis frá 2023 hlaut Íslensku Tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins í flokknum 'Önnur tónlist'. BRIDGES II er tíu klukkustunda löng hljóðtilraunaplata og var fagnað með jafn löngum tónleikum þar sem Ægir fékk með sér einvalalið gesta úr íslensku tónlistarlífi.
The Earth Grew Uncertain frá 2021 hlaut tilnefningu til Kraumsverðlaunanna og tvær tilnefningar til Íslensku Tónlistarverðlaunanna.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger