© 2026 Tix Ticketing

Hannesarholt
•
November 6
Ticket prices from
ISK 3,900




Tónlist á sér engin landamæri, dægurlög ferðast milli landa, tungumála og menningarheima og öðlast sífellt nýtt líf. Sum þeirra verða jafnvel vinsælli í nýjum búningi en í sinni upprunalegu mynd.
Les Métèques flytja sínar eigin útgáfur af þekktum frönskum perlum frá síðustu öld. Hér hljóma m.a. kunnugleg lög í nýju ljósi; lög sem margir þekkja betur í enskum útgáfum, eins og Les feuilles mortes (Autumn Leaves), Je t'appartiens (Let It Be Me) og Comme d'habitude (My Way).
Les Métèques skipa: Ásta Ingibjartsdóttir (söngur), Eyjólfur Már Sigurðsson (söngur og gítar), Olivier Moschetta (söngur og bassi) og Ragnar Skúlason (fiðla). Kynnir og sögumaður er Gérard Lemarquis, sem leiðir áheyrendur í gegnum sögur laganna og listamannanna sem gerðu þau ódauðleg.
Athugið, það er hægt að koma sér í franska-stemmningu fyrir tónleikana með því að panta sér franskan smakkdisk sem er borinn fram fyrir tónleikana kl.18 í matstofu Hannesarholts á 1. hæð.
Franskur smakk-platti Assiette de dégustation
Hægeldaðar nautakinnar í brúnni sósu með kartöflumús (Beint frá býli: Leirulækur/Mýrarnaut) Joues de bœuf mijotées, sauce brune et purée de pommes de terre
Bakað baguette með gráðaosti, peru og hunangi Baguette gratinée au bleu, poire et miel
Tarte flambée alsacienne: þunn, stökk flatbaka með crème fraîche, reyktu beikoni og lauk Tarte flambée alsacienne
Salade lyonnaise: frisée salat með beikoni og sítrónu-sinnepsdressingu Salade lyonnaise
Mjúksoðið egg með tapenade úr ólífum, ansjósum og túnfiski Œuf mollet, tapenade à l’ancienne aux olives, anchois et thon

