© 2026 Tix Ticketing
Bæjarbíó
•
July 17
Sale starts
April 30, 2026, 10:00 AM
(in 3 days)




Páll Óskar & Benni Hemm Hemm hafa slegið í gegn með nýju plötunni "Alveg".
Nú þar sem þeir munu leika lögin á nýju plötunni ásamt eldri smellum úr fortíð þeirra beggja í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Hér gefst einstakt tækifæri til að heyra þessi gullfallegu lög í návígi við Palla og Benna, ásamt stór hljómsveit og kór.
Páll Óskar & Benni Hemm Hemm voru leiddir saman af Kidda Hjálmi (Baggalútur) í þeim tilgangi að gera eitt lag fyrir sjónvarpsþáttinn Hljómskálann á RÚV. Afraksturinn varð ekki bara eitt lag, heldur heil plata sem ber titilinn "Alveg".
Palli og Benni fengu herskara af frábæru tónlistarfólki í stúdíóið með sér og útkoman er einstakt verk þar sem sameinast ljúfar og sætar laglínur og flugbeittir textar.
Platan hefur fengið frábæra dóma og Palli og Benni geta ekki beðið eftir því að flytja þessa mögnuðu tónlist fyrir Hafnfirðinga í Bæjarbíói.
- - - - - - -
"Plata ársins"
"Stórkostleg plata, sem verður betri með hverri hlustun"
"Eins og geðlyf við skammdegisþunglyndi"
"Varla hægt að hlusta á 'Eitt af blómunum' án þess að tárast"
"Sigur mannsandans"
RÁS 2
Júlía Aradóttir, Árni Matt & Margrét Erla Maack
- - - - - - -
"Hugsað með hjartanu"
"'Eitt af blómunum' er með eftirminnilegri baráttusöngvum sem ég hef heyrt"
"Þessi plata er svo eitthvað annað, svo það sé sagt"
"Aðgengileg og melódísk"
MBLArnar Eggert Thoroddsen
- - - - - - -
"Benni and Páll Óskar with their new album are doing what I was yearning for in younger musicians during such times. Lyrics that talk to contemporary politics. They are artists with principles. Bringing light, when darkness descends. I hope the younger scene picks up on their example. Because this is a time for artists to speak up."
THE REYKJAVÍK GRAPEVINEJón Trausti Sigurðarson
Ljósm Laimonas @ Sunday and WhiteMakeup Raymakeup.art Hönnun Arnar & Birna @ Studiostudio
18 ára aldurstakmark.

