© 2026 Tix Ticketing
Tjarnarbíó
•
May 23
Ticket prices from
ISK 3,900




Bartónar allra landsmanna efna til Vortónleika í Tjarnarbíó.
Í fyrsta sinn í áraraðir munu Bartónar, kallakór Kaffibarsins, bregða sér út fyrir barsins dyr og þvera Tjörnina endilanga í því skyni að syngja inn sumarið.
Einnig frumsýnum við nýjan kórstjóra, en það er enginn annar en hinn margrómaði Philip Barkhudarov.
Vel valin lög og veisla fyrir öll skynfærin.
Allur ágóði rennur til bágstaddra kórmeðlima víðsvegar um Borg óttans.

