© 2026 Tix Ticketing
Hátún 12
•
4 shows
Ticket prices from
ISK 3,500




Nýtt íslenskt leikverk sem meðlimir Halaleikhópsins hafa skapað saman undir leiðsögn Rúnars Guðbrandssonar (sem einnig leikstýrir) og Kolbrúnar Daggar Kristjánsdóttur sviðshöfundar.
Verkið fjallar um íbúa fjölbýlishúss, ættingja þeirra og óboðna gesti sem rápa út og inn í óþökk Söndru umsjónarmanns fasteigna. Þarna má einnig finna listakonuna Helenu sem flytur inn á móður sína. Fortíðin bankar uppá en einnig nágrannar sem vantar eitt og annað svo sem egg eða leiðsögn um lífið.
Hvað gerist þegar Sandra tilkynnir um ástand hússins og hvað verður um Ástu sem er alltaf að bíða?
Þetta er fyrsta verkið sem félagar í Halaleikhópnum semja og er persónudrifin samtímasatíra með alvörugefnum undirtón.

