© 2026 Tix Ticketing

Menningarfélag Akureyrar
•
May 28
Sale starts
May 1, 2026, 10:00 AM
(in 1 week)




Sönghópurinn Rok heldur tónleika í Hömrum. Lagavalið er fjölbreytt og skemmtilegt. Allt frá íslenskum lögum, nýjum og gömlum, til erlendra rokkslagara.
Sönghópurinn Rok hefur heldur betur stimplað sig inn í menningarsamfélag Akureyringa með þátttöku í hinum ýmsu verkefnum en það nýjasta var Rokkland 30 ára sem sjónvarpað var frá fyrr á þessu ári. Hópurinn hefur einnig haldið eigin tónleika, allt frá jólatónleikum yfir í stóra og metnaðarfulla rokktónleika.
Stjórnandi kórsins er Jónína Björt Gunnarsdóttir.
Hljómsveit skipa:
Stefán Gunnarsson - bassi
Valgarður Óli Ómarsson- trommur
Haraldur Ómarsson - gítar
Eyþór Alexander Hallsson - píanó
Fögnum sumrinu saman með söng og gleði.

