Of monsters and men / The mouse parade tour

Kaplakriki

October 17

Sale starts

May 1, 2026, 10:00 AM

(in 2 days)

Of Monsters And Men halda stórtónleika í Kaplakrika þann 17. október næst komandi. Tilefnið er að ljúka heimstónleikaferðalagi á sínum heimaslóðum og fagna eins árs afmæli fjórðu breiðskífu hljómsveitarinnar.

Þau gáfu út sína fjórðu breiðskífu, All Is Love And Pain In The Mouse Parade, í október 2025 og hafa verið að fylgja henni eftir á 12 mánaða tónleikaferðalagi um heiminn. Tónleikarnir hafa fengið frábærar viðtökur og gagnrýnendur lofa hljómsveitina fyrir einstaka tengingu við áhorfendur og kraftmikið tilfinningalegt ferðalag frá upphafi til enda.

Hljómsveitin er spennt að halda loksins tónleika á Íslandi og fagna eins árs afmæli plötunnar upp á dag þann 17. október. Þetta er því einstakt tækifæri til þess að fagna afmælinu með þeim og sjá þau taka öll sín bestu lög!

Ásamt hljómsveitinni koma fram tvær öflugar íslenskar tónlistarkonur, Árný Margrét og Rakel, sem báðar þekkja hljómsveitina vel og hafa hitað upp fyrir þau í Evrópu og í Bandaríkjunum.

Aldurstakmark er 20 ára

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger