Úr smiðju Umbru: Spákonan og skáldið

Hannesarholt

May 13

Ticket prices from

ISK 3,900

Tónlistarhópurinn Umbra vinnur nú að tveimur stór verkefnum samhliða. Annars vegar er hópurinn að semja tónlist við Völuspá, eitt merkasta kvæði íslands þar sem spákona lýsir sköpun heimsins, falli hans og endurreisn. Hins vegar er unnið að verkefninu Tvær hliðar Hallgríms, þar sem jöfnum höndum er tónsett úr veraldlegum og trúarlegum kvæðum Hallgríms Péturssonar. Veraldleg ljóð Hallgríms hafa lítið verið tónsett þrátt fyrir að vera magnaður spegill merkilegrar ævi og heimsmyndar sautjándu aldar. Við tónsmíðar sínar sækir Umbra innblástur í lagboða frá miðöldum, varðveittar stemmur og þjóðlög fyrri alda.  

Bæði verkefnin eru enn í sköpun og á þessum tónleikum gefst áhorfendum einstakt tækifæri til að skyggnast inn í smiðjuna og heyra hluta verkanna í fyrsta sinn, sem upptakt að stærri heild.

Lögð er rík áhersla á nánd við áhorfendur, sem fá að kynnast sagnaarfi og kveðskap liðinna alda í gegnum tóna og tal.

Um Umbru
Umbra hefur hlotið lof gagnrýnenda fyrir einstakan hljóm og framúrskarandi útsetningar á þjóðlagatónlist. Hljómsveitin var stofnuð árið 2014 af fjórum tónlistarkonum og sameinar íslenska þjóðlagatónlist, miðaldatónlist og frumsamdar tónsmíðar í tilfinningaríkum, vandlega útfærðum flutningi. Hópurinn hefur komið fram á fjölmörgum hátíðum í Evrópu og Asíu og gefið út fimm plötur. Platan Solstitium frá 2018 var valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger