© 2026 Tix Miðasala
Neskirkja
•
25. apríl
Miðaverð frá
3.000 kr.




Debussy og Enescu
Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari og Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari flytja tvær af stórkostlegustu og tónlistarsögulega mikilvægustu sónötum 20. aldarinnar, sónötu Debussy og þriðju sónötu Enescu fyrir píanó og fiðlu.
Þessi efnisskrá varpar ljósi á tvær ólíkar en samrýmanlegar raddir tónlistarsögunnar: annars vegar litríkan og tilraunakenndan hljóðheim Debussy og hins vegar dramatíska og þjóðlagatengda rödd Enescu. Bæði tónskáld sköpuðu sér alveg nýjan hljóðheim með persónulegum stíl sem þau þróuðu og það er í því samhengi sem okkur finnst þessar sónötur marka mikilvæg skil í tónlistarsögunni.
Sónata Debussy fyrir fiðlu og píanó er síðasta verk þessa mikla tónskálds, skrifað af dauðvona manni á tímum stríðs, en er þrátt fyrir það uppfull af lífi og sameinar allt það besta í tónlist hans, elegans og blæbrigði í “litavali”, rytmískan fjölbreytileika, lifandi samtal milli hljóðfæra og frelsi og óvæntar vendingar í þó mjög svo strúktúreraðri tónlist. Þriðja sónata Enescu fyrir fiðlu og píanó, í rúmenskum þjóðlagaanda, er ótrúlegt meistaraverk þar sem þjóðlagatónlist sameinast klassískum hefðum á flæðandi og áreynslulausan hátt. Tónlistin vellur áfram líkt og hún væri spunnin af fingrum fram en er þrátt fyrir það skrifuð af mikilli nákvæmni, hver einasta styrkleikabreyting, hvert tákn og orð í nótunum þaulhugsað. Úr verður klassískur þjóðlagagaldur sem heldur manni föngnum frá dreymandi upphafinu til fjörugs lokadansins.
Almennt miðaverð er 4000 kr. en 3000 kr fyrir öryrkja, aldraða og námsmenn. Frítt er fyrir unglinga og börn í fylgd með fullorðnum.

