© 2026 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
2. maí
Miðaverð frá
3.900 kr.




Dúettinn í Kleftes tú rebetikú (Rebetikó ræningjarnir) fjallar um gríska tónlist í tali og tónum á Hannesarholti. Leikinn verður rebetíka af fingrum fram en það er tónlist sem utangarðsfólk lék í földum knæpum í hafnarborg Aþenu snemma á síðustu öld. Svo taka við lög frægra tónskálda sem sýna áheyrendum hvernig þessi tónlist þróaðist í áranna rás. Farið verður vítt og breytt um hið tónlistarlega stórveldi sem Grikkland er og þó ræningjarnir séu aðeins tveir koma mörg hljóðfæri við sögu þó vissulega sé hið gríska búzúkí í lykilhlutverki. Eins fá þeir til sín gesti sem syngja.
Ræningjarnir eru þeir Ásgeir Ásgeirsson og Jón Sigurður Eyjólfsson eða Jón Prímus. Ásgeir gítarleikari, sem fólk þekkir meðal annars frá Sóldöggu og af löngum jazzferli, hefur undanfarin ár starfað með tónlistarmönnum frá Mið Austurlöndum og hefur í seinni tíð getið sér gott orð bæði sem búzúkí- og lútúleikari. Afrekstur þessarar vinnu má meðal annars finna á plötunni Crossing Boarders sem hlaut íslensku tónlistarverðlaunin í ár sem besta jazz plata ársins. Hún inniheldur lög eftir Ásgeir flutt af íslensku, írönsku, jórdönsku og indversku tónlistarfólki.
Jón Prímus hefur mikið fjallað um gríska tónlist einsog í bók sinni Tvíflautan sem Salka gaf út árið 2017 og eins í útvarpsþáttunum Á búzúkíslóðum sem tvívegis hafa verið fluttir í Ríkisútvarpinu. En hann hefur einnig leikið og sungið rebetíkalögin með íslenskum og grískum tónlistarmönnum í gegnum tíðina.

