Magnus Thorell

Iðnó Jazz

19 April

Ticket prices from

ISK 2,500

Nýr jazztónn í bænum!

Sænski trompetleikarinn Magnus Thorell er fluttur til Íslands! Hann hefur leikið með listamönnum og hljómsveitum á borð við Newtone, Magnus Lindgren, Blue House Jazz Orchestra, Lisa Nilsson, Karin Hammar og Roffe Wikström. Nú hefur hann sest að hér á landi og nýtur þess að kynnast íslenskri menningu – sundlaugunum, fiskinum og orku náttúrunnar.

Á daginn glímir hann við íslenskuna, en á kvöldin talar tónlistin sínu máli 🎶 Þar tengist hann frábærum tónlistarmönnum í Reykjavík í gegnum jazzinn.

Magnus sækir innblástur í hina klassísku Blue Note-hefð og uppáhalds trompetleikarar hans eru meðal annars Lee Morgan, Kenny Dorham, Miles Davis, Roy Hargrove og Lew Soloff. Á tónleikunum fáum við að heyra verk eftir þessa meistara – ásamt frumsömdum lögum eftir Magnus sjálfan.

Meðleikarar:
Maggi
Biggi
Ari
og fleiri góðir gestir...

Kvöld fyrir alla jazzunnendur – og þá sem vilja upplifa lifandi tónlist í sinni bestu mynd.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger