© 2026 Tix Ticketing
Digraneskirkja
•
29. - April 30
Ticket prices from
ISK 1,000




Til næturinnar –Vortónleikar Karlakórs Kópavogs
Karlakór Kópavogs heldur vortónleika sína miðvikudag 29. apríl og fimmtudag 30. apríl næstkomandi. Tónleikarnir verða með fjölbreyttu sniði þar sem flutt verður nýtt efni í bland við perlur úr fjársjóðskistu íslenskra karlakóra. Meðal annars verða frumflutt tvö ný lög eftir Gunnstein Ólafsson sem hann hefur sérstaklega samið fyrir kórinn. Með kórnum koma fram stórsöngvararnir Bjarni Atlason, Gissur Páll Gissurarson og Viðar Gunnarsson.
Söngstjóri: Sigurður Helgi
Einsöngvarar: Bjarni Atlason, Gissur Páll Gissurarson og Viðar Gunnarsson
Píanóleikari: Hrönn Þráinsdóttir
Trompetleikari: Elvar Bragi Kristjónsson

