OASIS heiðurstónleikar

Græni hatturinn, Akureyri

14 November

Sale starts

10 April 2026 at 10:00

(in 3 days)

OASIS heiðurstónleikar

35 ár eru nú liðin frá stofnun bresku hljómsveitarinnar OASIS í Manchester á Englandi. Sveitin sendi frá sér sjö breiðskífur á árunum 1994 til 2008 en lagði upp laupana árið 2009 eftir röð atvika milli forsprakka sveitarinnar, bræðranna Liam og Noel Gallagher. Hljómsveitin kom saman á síðasta ári og hélt í tónleikaferðalag víðsvegar um heiminn og komust færri að en vildu, svo ekki sé minna sagt. Margir Íslendingar sátu uppi með sárt ennið, enda sveitin aldrei heldur spilað á Íslandi yfir ferilinn.

Hópur íslenskra tónlistarmanna og aðdáenda sveitarinnar hefur því tekið sig saman og hyggst flytja öll bestu lög sveitarinnar með stælum á Græna Hattinum á Akureyri, Silfurtunglinu í Austurbæ í Reykjavík og í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Verður allt lagt í sölurnar, hækkað vel í og sungið sig hása en þó, í mesta bróðerni þar sem nostalgía tíunda áratugarins flæðir í gegnum ærandi gítara og einstaka kvöldstund sem vottar þessari stórkostlegu sveit virðingarvott og tekur hattinn ofan.

Hljómsveitina skipa:

  • Daníel Hjálmtýsson - söngur/slagverk  

  • Guðmundur Stefán Þorvaldsson - gítar

  • Hálfdán Árnason - bassi

  • Heiðar Örn Kristjánsson - söngur/gítar

  • Helgi Birgir Sigurðsson - trommur

  • Helgi Rúnar Gunnarsson - gítar

  • Jón Ingimundarson - hljómborð

Það er 20 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger