Grease - Söngleikur Hraunvallaskóla

17. - 18 April

Sale starts

7 April 2026 at 08:00

(in 5 days)

Grease – Söngleikur

Söngleikurinn Grease verður sýndur dagana 17. og 18.apríl.

Sýningarnar verða kl. 19:30 föstudaginn 17.apríl og 14:00 og 17:30 þann 18.apríl.

Miðaverð er 1500 krónur fyrir 16 ára og yngri og 2500 fyrir 17 ára og eldri.

Nemendur í 9. og 10.bekk Hraunvallaskóla hafa lagt hart að sér í vetur við uppsetningu söngleiksins Grease og eru spennt að sýna hvað í þeim býr. Þið verðið ekki svikin af þessari frábæru sýningu sem inniheldur mikið af söng og dansi. Það verða sungin lög sem flestir ættu að kannast við eins og Summer nights, Greased lightning og We go together.

Leikstjórar: Þórunn Jónsdóttir og Gunnþórunn Elísa Eyjólfsdóttir

Listrænn stuðningur: Sigríður Diljá Vilhjálmsdóttir

Leikmynd: Hörður Sveinsson og nemendur í fjölgreinadeild og 9.bekk.

Leikarar: Nemendur í 9. og 10. Bekk Hraunvallaskóla

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger