Sycamore Tree

Harpa

September 4

Sale starts

April 30, 2026, 9:00 AM

(in 2 days)

Sycamore Tree í 10 ár

Stórglæsilegir afmælistónleikar í Silfurbergi, Hörpu, 4. september.

Í ár fagnar Sycamore Tree 10 ára afmæli og af því tilefni heldur sveitin stórglæsilega afmælistónleika í Hörpu þann 4. September. Einvalalið hljóðfæraleikara mun verða þeim Ágústu Evu og Gunna Hilmars til aðstoðar við að gera kvöldið að ógleymanlegu ævintýri.

Síðasta áratuginn hefur Sycamore Tree skipað sér sess meðal vinsælustu hljómsveita landsins með fjölda laga sem notið hafa mikilla vinsælda á íslenskum útvarpsstöðvum og haldið fjöldamarga tónleika. Kvöldstund með Sycamore Tree er eins og tónlistin þeirra, fallegt ferðalag sem snertir hjörtu hlustenda. Á tónleikunum í Hörpu mun sveitin fara í gegnum helstu lög ferilsins, segja sögurnar, flytja nýtt efni, allt sérstaklega útsett fyrir þetta tilefni á afar glæsilegan hátt.

Tíu ár af tónlist, minningum og lögum sem hafa fylgt hlustendum um land allt, nú lifandi á sviði í Hörpu. Kvöld þar sem tíu ára saga Sycamore Tree lifnar við á sviðinu.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger