Grænland í brennidepli

9 April

Ticket prices from

ISK 0

Grænland í brennidepli

  Á þessum viðburði í Bókaklúbbi Spursmála er fjallað um Grænland og tækifærin sem þar leynast nú þegar þessi stærsta eyja heims hefur komist í brennidepil heimsmálanna.

Við fáum til liðs við okkur þrjá menn sem þekkja betur til málefna Grænlands en flestir aðrir Íslendingar.

Það eru þeir Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq Minerals, Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður Íslandsbanka og höfundur bókarinnar Norðurslóðasókn og Ragnar Axelsson, RAX, sem hefur ferðast um Grænland og myndað og skrifað um lifnaðarhætti frumbyggjanna þar í áratugi.

Þetta er einstakur viðburður sem þú mátt ekki láta fram hjá þér fara.

Við efnum til hans í tilefni þess að Bókaklúbbur Spursmála er árs gamall um þessar mundir og síðustu tvo mánuði höfum við fjallað um bækur sem beina sjónum að Grænlandi, Grænland og fólkið sem hvarf eftir Val Gunnarsson og Í fjarska norðursins eftir Sumarliða R. Ísleifsson.  

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger