Ferðalangar hér á jörð - Vortónleikar Hinsegin kórsins

Hjallakirkja

25 April

Ticket prices from

ISK 4,900

  Ferðalangar hér á jörð - Vortónleikar Hinsegin kórsins  


  

Hinsegin kórinn heldur sína árlegu vortónleika í Hjallakirkju þann 25. apríl kl 16:00. Við erum á leiðinni í ferðalag og bjóðum ykkur með.

Frá Reykjavíkurtjörn þjótum við saman upp í veðrahvolfið og höldum í ferðalag umhverfis hnöttinn. Með hinsegin gleraugun á lofti ferðumst við í tíma og rúmi og heimsækjum hina ýmsu staði. Við veifum fána í frönsku byltingunni, lítum til Írlands á ófriðartímum, hlaupum um á sléttum Afríku, heimsækjum bandarískan smábæ sem má muna sinn fífil fegurri, tyllum okkur hjá Lísu þar sem hún teiknar mynd og svo ótal margt annað. Hver veit svo nema við rekumst á Britney einhvers staðar á leiðinni.

Hinsegin kórinn stefnir á sitt eigið ferðalag í sumar þegar við förum til Brussel og tökum þátt í stærsta hinseginkóramóti heims, Various Voices. Rúmlega 4000 söngvarar í yfir 100 hinsegin kórum koma saman til þess að syngja, kynnast hvoru öðru og skemmta sér saman.

Tónleikarnir eru liður í fjáröflun fyrir ferðina og erum við þakklát fyrir hvert og eitt ykkar sem sjá sér fært að mæta og vonum að við sjáum ykkur sem flest!

Þið þekkið þetta – hik er sama og tap!

Stjórnandi Hinsegin kórsins er Helga Margrét Marzellíusardóttir og meðleikari er Kristján Hrannar Pálsson.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger