© 2026 Tix Ticketing

Hljómahöll
•
22 April
Ticket prices from
ISK 2,500




Grýbos er tónlistarverkefni bræðranna Alexanders og Jakobs Grybos. Verkefnið hófst sem tilraunir í upptökuveri þar sem var prófað allt frá A til Ö, það þróaðist fljótt í hljómsveit með kraftmiklum hljóðheim. Með þeim í lið slógust Hlynur Sævarsson á bassa og Magnús Már Newman á trommur.
Tónlistin einkennist af stórum og kraftmiklum köflum sem flæða áreynslulaust yfir í mildari ‘’atmó’’ kafla. Fyrsta plata sveitarinnar kemur út í haust og eru nokkrir sínglar væntanlegir á næstu misserum.
Grýbos stíga á svið í heimabæ sínum í Hljómahöll þann 22. apríl með liðsauka með sér innanhandar.

