Velkomin á bannsvæðið: Tarkovskí og Tsjernobyl – 40 ára minning

Hótel Holt

26 April

Ticket prices from

ISK 5,900

Velkomin á bannsvæðið: Tarkovskí og Tsjernobyl – 40 ára minning


Gengið á slóðir kvikmyndaleikstjórans Andrejs Tarkovskís og Larissu eiginkonu hans en þau fóru í sögulega heimsókn til Íslands árið 1985. Í ár eru fjörutíu ár liðin síðan Tarkovskí lést og Fórnin, síðasta mynd meistarans, var frumsýnd; enn fremur verður þess minnst að þennan dag fyrir fjörutíu árum – þann 26. apríl, 1986 – átti Tsjernobyl-slysið sér stað. Síðari kvikmyndir Tarkovskís eru líkt og spásögn fyrir slysið vofeiflega sem stuðlaði að því að Ronald Reagan og Míkhaíl Gorbatsjov hittust í Reykjavík síðar þetta sama ár til að binda enda á kalda stríðið.

            Gunnar Þorri Pétursson leiðir gönguna og heldur fyrirlestur um það forvitnilega samhengi sem skapaðist á milli Tarkovskís, Tsjernobyl og Íslands sem skurðarpunkts austurs og vesturs á tímum kalda stríðsins. Gunnar Þorri hlaut Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir þýðingu sína á Tsjernobyl-bæninni eftir Nóbelsverðlaunahöfundinn Svetlönu Aleksíevítsj. Hann hefur á undanförnum árum haldið úti vinsælum námskeiðum um rússneska menningu á Hótel Holti og víðar. Leikkonan Guðrún Gísladóttir mun segja frá kynnum sínum af Tarkovskí en hún lék eitt aðalhlutverkanna í Fórninni. Benedikt Erlingsson leikari og leikstjóri mun einnig slást í för með hópnum og segja frá því hvernig hann fléttaðist með áhugaverðum hætti inn í sögulega heimsókn Tarkovskí-hjónanna. Þau voru voru landflótta og í öngum sínum þar sem stjórnvöld héldu syni þeirra nauðugum eftir í Sovétríkjunum. Íslendingar efndu til Tarkovskí-kvikmyndahátíðar í Reykjavík til að vekja athygli heimsins á þessu mannréttindabroti, hátíðin vakti mikla athygli og heitar umræður – sovéska sendiráðið reyndi að koma í veg fyrir að hún yrði haldin og til átaka kom í anddyri Regnbogans (nú Bíó Paradís) þegar starfsmaður sendiráðsins reyndi að stöðva sýningu á einni af kvikmyndum Tarkovskís!

 

Missið ekki af þessum einstaka viðburði, gestafjöldi er takmarkaður og atburðurinn verður aðeins haldinn í þetta eina skipti. Gangan hefst kl. 14:00 á Hótel Holti og lýkur í Bíó Paradís kl. 18:30 með sérstakri hátíðarsýningu á Fórninni.

 

Að viðburðinum standa Bíó Paradís, Kvikmyndalistadeild Listaháskóla Íslands og Kvikmyndafræði við Háskóla Íslands.

 

  

Athugið að miði í gönguna gildir ekki á bíósýningu Fórnarinnar en hægt er að nálgast miða á bíósýninguna á heimasíðu Bíó Paradís, sjá hér:

 

https://bioparadis.is/mynd/840_f-rnin-the-sacrifice/

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger