© 2026 Tix Ticketing
Rannsóknarsetur Santé, Skeifunni 8
•
15 April
Ticket prices from
ISK 7,900




Grassl Glass kemur til Íslands
Grassl Glass, svissneskur glasaframleiðandi sem sérhæfir sig í klassískum, munnsblásnum
vínglösum, kemur í heimsókn miðvikudaginn þann 15.apríl. Alexander Mackh, eigandi
fyrirtækisins, og Xavier koma persónulega til að halda Masterclass með okkur í Rannsóknarsetri
Santé.
Þátttakendur fá tækifæri til að hitta framleiðandann sjálfann, fræðast um hugmyndafræðina á
bak við hönnunina og kynnast því hvernig glas hefur raunveruleg áhrif á upplifun víns. Á
dagskránni er einnig vínsmökkun þar sem úrval af vínum úr safni Santé verður borið fram í
glösum Grassl — og munurinn í bragði og ilmi eftir glasategundum kannaður. Að kvöldi loknu fá
allir þátttakendur eitt glas með sér heim.
Grassl Glass hefur vaxið hratt á undanförnum árum og hlotið hljómgrunn meðal vínáhugamanna
og fagmanna um allan heim. Þetta er sjaldgæft tækifæri til að kynnast fyrirtækinu í gegnum þá
sem standa að baki þess.
Viðburðurinn hentar vel fyrir alla sem hafa áhuga á glösum og áhrifum þeirra á vín upplifunina —
ekki síst þá sem eiga nú þegar Grassl glös heima og vilja skilja betur hvernig þau virka.

