Samfélagsmiðlar og efnisgerð (kennt á ensku)

Digido, Borgartún 29

•

October 29

Ticket prices from

ISK 69,900

  Efnisgerð fyrir samfélagsmiðla (kennt á ensku)  

29. og 30.október 2026

  

Fyrir hverja?

Námskeiðið Samfélagsmiðlar og efnisgerð er tilvalið fyrir markaðsfólk, frumkvöðla og alla þá sem vilja skerpa á færni sinni í stýringu samfélagsmiðla og efnisgerð til að ná framúrskarandi árangri með grípandi efni og myndböndum. Þetta er hagnýtt námskeið þar sem þú munt læra að framleiða stutt myndbönd (t.d. Reels og TikToks) og carousel-færslur á skilvirkan hátt, tileinka þér bestu starfsvenjur í stýringu samfélagsmiðla og birtingu efnis og móta þína eigin samfélagsmiðlastefnu sem styður við vörumerkið þitt.

Ath. að námskeiðið er kennt á ensku.


Á námskeiðinu munu þátttakendur læra

  • Hvað virkar á samfélagsmiðlum árið 2026 og hvers konar efni þú ættir að setja í forgang

  • Mótun samfélagsmiðlastefnu sem styður við vörumerkið eða fyrirtækið þitt

  • Vinsæl snið fyrir myndbönd og carousel-færslur á samfélagsmiðlum

  • Gerð efnisdagatals (e. content calendar) og uppbygging skilvirks og sjálfbærs vinnuferlis í efnisgerð

  • Bestu starfsvenjur í dreifingu efnis og stýringu samfélagsmiðla

  • Hagnýt ráð um efnisgerð, allt frá hugmynd að upptöku, klippingu og birtingu

  • Nýting gervigreindar til að gera efnisgerðina skilvirkari


Um kennara

Cathrine Frederiksen hefur starfað sem sérfræðingur í efnisgerð fyrir samfélagsmiðla í yfir sex ár. Hún hefur unnið efni fyrir vörumerki á borð við Guide to Iceland, Bláa lónið og Íslandsstofu.


Aðrar upplýsingar

Digido teymið hefur haldið yfir 100 námskeið í markaðssetningu.

Námskeiðið er tveir dagar en kennt er í þrjá tíma í senn.

Stéttarfélög veita allt að 90% styrk af námskeiðisgjaldi.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger