© 2026 Tix Ticketing

Salurinn
•
22 April
Ticket prices from
ISK 6,500




Þórarinn Eldjárn hefur þýtt ógrynni erlendra ljóða og laga. Sumar þeirra þýðinga eru fólki kunnugar, svo sem lög úr leikritum Astrid Lindgren en aðrar hefur fólk enn ekki heyrt. Vigdís Hafliðadóttir, vísnasöngkona, mun ásamt hljómsveit sem skipuð er Halldóri Eldjárn, Úlfi Eldjárn, Daníel Helgasyni og Birgi Steini Theodórssyni, flytja fjölbreytt úrval laga sem eiga það sameiginlegt að Þórarinn Eldjárn ákvað að þýða þau.

