Helgi Björns & Reiðmenn vindanna

Harpa

17 October

Sale starts

17 March 2026 at 00:00

(in 7 days)

Í yfir 40 ár hefur Helgi Björns sungið með þjóðinni. Lög hans lifa með okkur. Í gleði og gráti, í söknuði og sælu, í dansi og á dimmum dögum. Nú stíga Helgi Björns og Reiðmenn vindanna á stokk í Eldborg, ásamt sérstökum gestum, með tónleika sem fanga þennan sönglagaarf. 

Þetta eru lögin sem við eigum saman og höfum sungið kynslóð fram af kynslóð. - Við þekkjum augnablikið þegar þú komst í hlaðið á hvítum hesti. - Við munum þegar vor var í augum þér. - Við höfum riðið sem vindurinn, staðið í stormi og sungið okkur í gegnum myrkur og ljós. Þetta kvöld verður eins konar ferðalag minninganna þar sem við upplifum kraft og hlýju, rokk og rómantík, sögur og samhljóm. 

Að hætti Reiðmanna, sem er hljómsveit í toppformi, verður stemningin lifandi, einlæg og full af orku - þar sem salurinn syngur með. Þetta verða meira en bara tónleikar. 

Þetta verður kvöld þar sem minningar lifna við og nýjar verða til. Tryggðu þér miða í tíma, þar sem Eldborg fyllist hratt þegar vindar rísa.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger