© 2026 Tix Ticketing

Hannesarholt
•
4 June
Ticket prices from
ISK 3,900




Þórður og Atli koma suður með seiðandi horn og píanótónleika.
Þórður Sigurðarson hefur hefur starfað við tónlist frá 17 ára aldri. Hann lauk kirkjuorganista prófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar meðfram menntaskóla, fór því næst til Noregs og lauk þar námi við Viken folkehögskole í Rytma tónlist og hefur einnig lokið grunnnámi í jazz píanóleik við The New School for Jazz and Contemporary Music í New York.
Þrátt fyrir ungan aldur er reynsla Þórðar víðtæk á sviði tónlistarinnar og spannar þátttöku í verkefnum á sviði Jazz, popp, rokk og klassískur. Hann hefur sungið í kórum frá unga aldri og stjórnað Kirkjukórum á Langanesi, Norðfirði, Mosfellsbæ og einnig Karlakór Kjalnesinga. Meðfram organistastarfi í Neskaupstað stjórnaði hann tónlist við flutning á söngleikjum listadeildar Verkmenntaskóla Austurlands og þurfti þá einnig að útsetja fyrir kórinn. Hann hefur sett upp stór klassísk og trúarleg verk í starfi sínu innan kirkjunnar og stjórnað kór og stórri hljómsveit. Rytma tónlistin hefur spilað stóran þátt í lífi hans og hefur hann spilað í hinum ýmsu hljómsveitum, m.a. Rock Paper Sisters sem hituðu upp þegar Billy Idol spilaði í Laugardalshöll.
Atli Sigurðsson hóf sitt tónlistarnám við 10 ára aldurinn á Baritón horn hjá Eiríki Stephensen (Hundur í óskilum) við Tónlistarskóla Dalvíkur og síðar lítillega hjá Ingibjörgu Azimu Guðlaugsdóttur. Hann hóf sitt hornnám hjá Helga Þ. Svavarssyni við Tónlistarskólann á Akureyri og fór svo suður og lærði hjá Joe Ognibene við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann hætti í tvö ár að spila og hóf nám aftur við Tónlistarskólann á Akureyri aftur hjá Helga Þ. Svavarssyni og fór þaðan til Ellu Völu Ármannsdóttur og kláraði framhaldsprófið vorið 2017. Þaðan lá leiðin í Listaháskólann og var þar undir handleiðslu Emils Friðfinnssonar í 4 ár og kláraði B.A. gráðu í hornleik þaðan.
Atli hefur spilað með Nordiska Ungdomsorkestern, Orkester Norden, Sinfóníuhljómsveit Unga Fólksins, Ungsveit SÍ, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit Austurlands og Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna.
Fyrsta verkið eða Ave Maria eftir Gonoud með melódíunni frægu úr verki Bachs eða Prelúdíu í C dúr er bland af barrokki og rómantík (Gounod). Verkið er ódauðlegt og mun lifa um ókomin ár.
Næsta verk er Ave verum corpus sem er stuttur Eucharistic söngur frá 13. Öld. Hefur öðlast mikið vægi og er jafnan flutt í jarðarförum og brúðkaupum og helst messum.
Þriðja verkið er þekktasta af þessum þremur eða Ave Maria eftir Franz Schubert. Verkið er klassískt samið fyrir rödd og píanó eða orgel. Það er oftast í jarðarförum og messum í kirkjum. Hefur verið flutt af t.d. Pavarotti og drengjakór Vínar Fílharmóníunnar í Vín.
Fjórða verkið er Nocturno op. 7 eftir Franz Strauss. Franz var hornleikari og faðir Richard Strauss. Verkið telst til rómantíkur með fallegum og lýrískum melódíum og spannar 3 áttundir.
Fimmta verkið er Laudatio eftir Bernhard Krol (Var lowhorn leikari í einni af Berlínar atvinnu hljómsveitunum á 7. Og 8. Áratug síðustu aldar. Verkið var samið sér fyrir Hermann Baumann (virtúós sem er sá þekktasti á hornið) og er módernískt. Verkið byrjar með ákveðnu mótífi sem spyr trúarlegrar spurningar. Eftir fylgir ferðalag þar sem er gerð leit að skilningi. Þetta er eitt mest flutta sólóverk fyrir horn.
Sjötta verkið er hornkonsert nr. 3 eftir W.A. Mozart í Es dúr KV 447
(Allegro/Andante/Rondo Allegro). Verkið er einn af fjórum hornkonsertum og einu auka rondói sem var skrifað fyrir ostagerðarmanninn og vin Mozarts Josef Leutgebs sem var fiðluleikari og náttúruhornleikari. Verkið telst til klassíkur og inniheldur eina kadensu í lok 1. Kafla (Kadensan sem ég spila er eftir Dennis Brain horn virtúós dó 1957 í bílslysi).
Síðasta verkið er Rómansa op. 36 e. Camille Saint-Saens. Undurfalleg rómantísk melódía í horninu og brotnir hljómar frekar einfaldir í píanóinu. Smá drama sem byggist upp og leysist frá hápunkti niður í lágpunkti. Grunnstigsverkefni en Meira segja Radovan Vlatkovic (frægasti og besti hornleikarinn) spilar það sem aukalag eða jafnvel Gabriel Chopka (Sóló horn Varsjár Fílhamóníunni.) (Orkestria filharmoni narodówej).

