Rocky Horror – Leikfélag Húsavíkur

Samkomuhúsið á Húsavík

4 shows

Ticket prices from

ISK 5,000

Rocky Horror – Leikfélag Húsavíkur

Rocky Horror er tryllt, litrík og ógleymanleg upplifun sem hefur heillað áhorfendur um allan heim Goðsagnakennd sýning sem sameinar tónlist, grín, vísindaskáldskap og ögrandi stemningu í einni stórskemmtilegri og orkumikilli veislu.

Þegar ungt saklaust (hmmm.. er það?) par leitar skjóls í dularfullum kastala hefst ferðalag inn í heim þar sem allt getur gerst.

Ert þú ert tilbúin(n) í kvöld þar sem reglurnar víkja, gleðin ræður ríkjum og þú færð að vera nákvæmlega eins og þú ert? Þá er Rocky Horror veislan sem þú mátt ekki missa af.

Leikstjóri Eyvindur Karlsson.

Partýsýning – Rocky Horror á Húsavík laugardagskvöldið 4. apríl kl 22 

Vertu tilbúin/n fyrir eina villta, skrautlega og ógleymanlega kvöldstund í samkomuhúsinu á Húsavík! 

Rocky Horror partýsýningin mætir með allt sem þarf til að kveikja stemninguna – litrík, óhefðbundin og full af gleði, tónlist og leikhústöfrum. 

Á barnum verður til sölu ljúffengur Leikhúslager frá Húsavíköl sem heldur gleðinni flæðandi, á meðan þú stekkur beint inn í upplifunina. 

Með QR-kóða færð þú tækifæri til að taka virkan þátt – fylgja handriti, hrópa, syngja með og verða hluti af sýningunni sjálfri. 

Hér er ekki bara horft – hér er tekið þátt! Húsið og sjoppan opna kl. 21:00 og partýið sjálft hefst kl. 22:00. Ekki missa af þessu – mættu, slepptu þér laus/um, klæddu þig upp ef þú vilt og upplifðu Rocky Horror á alveg nýjan hátt. Kastalinn bíður.

ATH! 18 ára aldurstakmark er á Partýsýningu

Það er 14 ára aldurstakmark á þennan viðburð, að koma með barn undir aldurstakmarki ógildir þann miða og ekki er endurgreitt.

Viðvörun: Það er notast við strobe-lýsingu í sýningunni.

Miðar eru ekki endurgreiddir séu 24 klst eða styttra í sýningu

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger