Litla hryllingsbúðin

Langholtsskóli

12. - 15 March

Ticket prices from

ISK 3,000

Leikfélag Langholtsskóla kynnir söngleikinn Litla Hryllingsbúðin.

Sýningin er sett upp af nemendum í 9. og 10. bekk undir leikstjórn Hörpu Stefánsdóttur og Fjólu Kristínar Nikulásdóttur. Bryndís Sveinsdóttir leiddi hóp nemenda í skapandi vinnu við gerð sviðsmyndar og leikmuna, en nemendur hafa lagt mikla alúð í að skapa lifandi og skemmtilega sýningu.

Söngleikurinn segir frá Baldri, ungum manni, sem býr í sóðalegasta hverfi borgarinnar, Skítþró. Þar vinnur hann í blómabúð sem er við það að fara í gjaldþrot. Dag einn rekst hann á dularfulla plöntu sem reynist hafa óvenjulega og hættulega matarlyst. Plantan færir honum frægð og frama, en brátt kemur í ljós að allt hefur sinn fórnarkostnað.

Litla Hryllingsbúðin hefur notið mikilla vinsælda víða um heim frá frumsýningu og er orðin einn þekktasti söngleikur allra tíma. Áhorfendur mega því búast við kraftmikilli og skemmtilegri sýningu þar sem hæfileikar nemenda fá sannarlega að njóta sín.

Ekkert aldurstakmark en sýningin gæti verið óhugnanleg fyrir yngstu áhorfendurnar.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger