© 2026 Tix Ticketing
Tjarnarbíó
•
21. - 24 March
Ticket prices from
ISK 3,500




Verið velkomin á sýningu Söngskólans í Reykjavík á söngleiknum Öskubusku!
Þessi frábæra útgáfa sögunnar var síðast var sett á svið árið 1978 í Þjóðleikhúsinu, með grípandi tónlist eftir Sigurð Rúnar Jónsson (Didda fiðlu) og stórskemmtilegum söngtextum eftir Þórarin Eldjárn.
Mikill húmor og gleði einkennir uppsetningu Söngskólans sem verður frumsýnd í Tjarnarbíói 21. mars og hæfileikar nemenda sem taka þátt í sýningunni fá að skína skært.
Einhverjir muna eflaust eftir vinsælli plötu með uppfærslu Þjóðleikhússins. Margir af okkar dáðustu leikurum voru þar í hlutverkum, svo sem Edda Þórarinsdóttir, Árni Tryggvason, Bríet Héðinsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Sigríður Þorvaldsdóttir og Sigurður Sigurjónsson.
Söngleikurinn byggir á kvikmynd Jewgeni Schwarz um Öskubusku en sviðsgerð og þýðing er eftir Eyvind Erlendsson. Í uppsetningu Söngskólans í Reykjavík er handritið endurunnið af Þórunni Lárusdóttur.
Allir aldurshópar eru velkomnir á sýninguna.
Mikil spenna er fyrir uppsetningunni, bæði hjá nemendum og kennurum.
Hlutverkaskipan:
Öskubuska: Hanna Tara Björnsdóttir
Kóngur: Þrándur Ingvarsson
Prins: Sigurpáll Jónar Sigurðarson
Stjúpa: María Thelma Smáradóttir
Maríanna og varðmaður: Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir
Anna, samkvæmisdansmálaráðherra og varðmaður: Sara Líf Sigurjónsdóttir
Dísin: Olga María Rúnarsdóttir
Lærisveinn: Sigurður Matthías Sigurðarson
Foringi: Mikael Ólafsson
Þjónn og galdrakarl: Aþena Helgadóttir
Hermaður o.fl.: Jónína St. Gyðudóttir
Hermaður o.fl.: Saga Karolin Szabó
Veislugestur ofl. Karen Ósk Kristjánsdóttir
Nemendur úr Ungdeild Söngskólans í Reykjavík sem taka þátt í sýningunni eru:
Elín Katrín Þórlindsdóttir
Freyja Linnea Einarsdóttir
Harriet Selma Baldursdóttir
Katalija Strzalkowska
Kári Nikulásson
Lísa Vésteinsdóttir Solís
Mia Aníta Briem Paraskevopoulou
Orri Hallfríðar Þórisson
Petra Freyja Baldursdóttir
Listrænir stjórnendur:
Leikstjóri: Þórunn Lárusdóttir
Tónlistarstjóri: Kjartan Valdemarsson
Deildarstjóri og söngþjálfari: Valgerður Guðnadóttir
Hljóð: Þórður Gunnar Þorvaldsson
Ljós: Aron Martin Ásgerðarson
Búningar og sviðshönnun: Valgerður Guðnadóttir, Þórunn Lárusdóttir og leikhópur.
Sviðshreyfingar: Þórunn Lárusdóttir og leikhópur.
Skólastjóri og framkvæmdastjóri sýningar: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.
Hönnun á kynningarefni: Fugl á hugarflugi (Ingi Vífill Guðmundsson)
Söngskólinn í Reykjavík hefur verið starfandi frá haustinu 1973 og hefur útskrifað fjölmarga söngvara.
Inntökupróf fyrir Söngleikjadeild, Ungdeild og almennar deildir Söngskólans í Reykjavík fyrir skólaárið 2026-2027 fara fram 22. maí 2026. Umsóknir eru opnar á vefsíðu skólans: songskolinn.is.
Sérstakar þakkir:
Nýi tónlistarskólinn
Sigurður Sævarsson
Óperan
Snorri Petersen
Hugleikur
Þórunn Guðmundsdóttir
Messíana Tómasdóttir

