© 2026 Tix Ticketing

Hannesarholt
•
18 April
Ticket prices from
ISK 3,900




Kitty Kovács leikur Goldberg tilbrigðin eftir J.S. Bach í Hannesarholti.
Kitty Kovács er fædd í Győr í Ungverjalandi. Hún útskrifaðist frá tónlistardeild Széchenyi István háskólans þar í borg með diplómu í píanó- og kammertónlist. Eftir útskriftina starfaði hún sem undirleikari í Győr og lagði síðan stund á undirleikaranám við Ferenc Liszt Akademíuna í Budapest. Á námsárum sínum vann hún í píanókeppnum, m.a. árið 1997 í Salt Lake City og árið 2000 varð hún í 3. sæti í Chopin keppninni. Kitty kom til Íslands árið 2006 og hefur starfað sem píanókennari og organisti, frá árinu 2011 hefur hún verið kirkjuorganisti við Landakirkju í Vestmannaeyjum og kennari við Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Undanfarin 5 ár hefur Kitty stundað orgelnám við Tónskóla þjóðkirkjunnar og vorið 2017 lauk hún kantorsnámi þaðan.
í bók sinni " Um Johann Sebastian Bach: Líf hans, list og listaverk" segir Johann Nikulaus Forkel um Goldberg tilbrigðin:
Þetta dásamlega verk felur í sér þrjátíu tilbrigði, þeirra á meðal keðjulög í öllum tónbilum og hreyfingum, frá einund til níundar, með auðkennilegum og frjálst líðandi röddum: Ennfremur fullgilda fjórraddaða fúgu, og auk margra annarra glæsilegra tilbrigða fyrir tvö hljómborð svonefndan söngvasóp (Quodlibet) að lokum, sem myndi hafa nægt til að halda nafni meistara síns á loft, enda þótt hann sé ekki veigamesti þáttur verksins.
Frumhugmyndina að þessu verki, sem öll tilbrigðin áttu að miðast við, enda þótt þar sé af skiljanlegum ástæðum víða út af brugðið, eigum vér Kaiserling greifa, fyrrverandi rússneskum sendiherra hjá kjörfurstanum af Saxlandi, að þakka; en hann dvaldi oft á tíðum í Leipzig og hafði áðurnefndan Goldberg með sér þangað til að útvega honum uppfræðslu í tónlist hjá _Bach. Greifinn var oft vanheill og átti erfitt um svefn. Goldberg, sem bjó hjá honum, þurfti þá að sitja uppi á nóttunni í hliðarherberginu og stytta greifanum and-_vökustundirnar með hljóðfæraslætti. Einhverju sinni bað greifinn Bach um nokkur klaverlög handa Goldberg, sem væru svo þýð og þó svo skemmtileg, að þau gætu orðið honum sjálfum til nokkurs hugarléttis á andvökunóttum. Bach taldi sig bezt geta uppfyllt ósk greifans með því að semja tilbrigði, en verk af því tagi hafði allt til þessa virzt lítið fýsilegt viðfangs sökum tilbreytingarleysis undirstöðuhljómanna. En þessi tilbrigði urðu í höndum Bachs, eins og öll önnur tónverk hans, hvert á sínu sviði, öðrum til fyrirmyndar, og eru hið eina verk sinnar tegundar, sem hann samdi. Greifinn kallaði þau jafnan upp frá því tilbrigðin sín. Hann fékk aldrei nóg af því að hlusta á þau, og lengi eftir það var viðkvæðið þetta, þegar svefnleysið sótti að honum: „Góði Goldberg minn, leiktu nú fyrir mig eitt af tilbrigðunum mínum." Bach hefir að líkindum aldrei verið launað neitt verk sem þetta. Greifinn gaf honum gullbikar, fylltan hundrað Hlöðvispeningum. En listgildi tilbrigðanna er hinsvegar svo mikið, að ekki hefði verið fulllaunað, þótt gjöfin hefði verið þúsundföld."

