Iðnó Jazz

29 March

Ticket prices from

ISK 2,500

Rakel

Rakel Sigurðardóttir hefur verið partur af íslensku tónlistarsenunni í þónokkur ár. Tónlist hennar hefur reglulega ratað á vinsældarlista hér á landi, hún komið fram og ferðast um heiminn með fjölmörgum þjóðþekktum tónlistarmönnum og hljómsveitum (s.s. Nönnu Bryndísi Hilmarsdóttur, Lón, Ceasetone, Damon Albarn, Kaktusi Einarssyni, Axel Flóvent o.fl.) og hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir tónlist sína. Árið 2021 gaf Rakel út sína fyrstu stuttskífu, Nothing Ever Changes, og sama ár hlaut hún tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem nýliði ársins. Það sama ár átti hún eitt af vinsælustu lögum ársins ‘21 ásamt JóaPé og Ceasetone (“Ég var að spá”). Ári seinna gaf hún, ásamt tónlistarkonunum Salóme Katrínu og Söru Flindt (DK), út deiliskífuna While We Wait, og hlaut sú plata tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunana sem plata ársins. Árið 2025 gerði hún plötusamning við útgáfufyrirtæki Ólafs Arnalds, OPIA Community og gaf út plötuna ‘a place to be’. Platan hefur hlotið mikið lof bæði á Íslandi sem og erlendis, en platan hlaut t.a.m. Kraumsverðlaunin 2025 og PLUS verðlaun Iceland Airwaves. Rakel undirbýr sig núna undir ár af ferðalögum um heiminn þar sem hún mun spila á showcase hátíðum sem og hita upp fyrir hljómsveitina Of Monsters and Men á tónleikaferðalagi þeirra um Evrópu.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger