© 2026 Tix Ticketing
Sviðið, Selfossi
•
4 April
Sale starts
18 February 2026 at 10:00
(in 23 hours)




Jónas Sig & hljómsveit á Selfossi
Jónas Sig snýr aftur á Sviðið með hljómsveitina sína og verður nú með tónleika á sviðinu þann 4. apríl.
Jónas þarf vart að kynna fyrir sunnlendingum enda hefur hann og hljómsveitir hans spilað fyrir fullu húsi hverja tónleikana á fætur öðrum í árana rás og síðast á Sviðinu í lok árs '24 þar sem þeir félagar áttu stórleik og mögnuðu upp göldrótta stemningu. Það er því alveg ljóst að kominn er tími á að endurtaka leikinn.
Ferill Jónasar spannar alltaf aftur í gamla sveitaballið þegar Jónas var einn af forsprökkum Sólstrandagæjanna og söng lög eins og Rangur maður og Sólstrandargæji fyrir fullu húsi í Gjánni sælla minninga. Það var stuttur tími en nokkrum árum seinna eftir hlé frá bransanum sneri Jónas aftur með eigið efni sem kom mörgum á óvart. Þar með djúpum, ógleymanlegum perlum eins og Hafið er svart, Milda hjartað og Faðir og auðvitað partý-stuð-ádeilum eins og Hamingjan er hér, Hleypið mér út úr þessu partýi, Baráttusöngur uppreisnarklansins og svo mætti lengi telja.
Það er mikil tilhlökkun fyrir þessum tónleikum hjá Jónasi og félögum og spenningur að snúa aftur á Sviðið. Ógleymanlegu kvöldi lofað.
Jónas Sig kemur með hljómsveitina sína sem er skipuð Ómari Guðjónssyni á gítar, Tómas Jónsson á orgvélar og syntha, Arnar Gíslason á trommur og Guðna finnsson á bassa.
Það er 20 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

