Reykjavík Folk Festival 2026

IÐNÓ

20 March

Ticket prices from

ISK 5,900

Reykjavík Folk Festival snýr aftur, annað árið í röð, dagana 19.-21. mars 2026 næstkomandi. Hátíðin er sett upp að alþjóðlegri fyrirmynd þar sem spilagleðin er í forgrunni og órafmögnuð hljóðfæri eru í aðalhlutverki. Fyrsta hátíðin fór fram með þetta að leiðarljósi árið 2010. Forsvarsmaður, hugmyndasmiður, helsti hönnuður og fyrsti framkvæmdastjóri Reykjavik Folk Festival var Ólafur Þórðarson, ástsæll tónlistarmaður í Ríó Tríó og fleiri hljómsveitum auk þess að vera bakhjarl fjöldamargra tónlistarmanna.

Þjóðlagatónlist (e. folk music) hefur stundum verið skilgreind sem tónlist eða tónlistaráhrif sem rekja uppruna sinn til hins venjulega alþýðumanns, tónlistararf sem borist hefur mann frá manni, kynslóð frá kynslóð. Oftar en ekki má rekja þetta til þess að vinir eða fjölskyldan hafa komið saman, sungið og spilað af fingrum fram. Réttara væri því kannski að tala um alþýðutónlist.

Aðaldagskrá Reykjavík Folk Festival fer fram í Iðnó föstudaginn 20. mars og laugardaginn 21. mars.

Opnunarkvöld og setning hátíðarinnar fer fram í Tónlistarmiðstöð og Ægi 101 fimmtudaginn 19. mars ásamt frekari hliðardagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó hina dagana.

Nánari upplýsingar á

facebook.com/reykjavikfolkfestival

instagram.com/reykjavikfolkfestival

DAGSKRÁ:

Fimmtudagur 19. mars

- Tónlistarmiðstöð - ókeypis aðgangur

  • kl. 17:00-19:00 - Setning og almenn gleði, tónlistaratriði og ræðuhöld.

- Ægir 101 - ókeypis aðgangur

  • kl. 20:00-23:00 - Reykjavík Trad Sessions

Föstudagur 20. mars

- Iðnó - ókeypis aðgangur

  • kl. 18:00 - MÍT Showcase nemendatónleikar

- Iðnó -

  • kl. 19:00 - húsið opnar, Ásgeir Ásgeirsson leikur á oud

  • kl. 20:00 - Svavar Knútur

  • kl. 21:00 -  Umbra Ensemble

  • kl. 22:00 - Óður til íslenskrar alþýðutónlistar (listafólk kvöldsins ásamt Snorra Helgasyni og Brek).

Laugardagur 21. mars

- Iðnó - ókeypis aðgangur

  • kl. 13:00 - Danslög Jónasar, kynning og dans

  • kl. 15:00 - Barna- og fjölskyldudagskrá, Siggi & Ingibjörg

- Iðnó -

  • kl.19:00 - húsið opnar

  • kl. 20:00 - Soffía Björg & Fríða Dís

  • kl. 21:00 - Árstíðir

  • kl. 22:00 - Una Torfa

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger