© 2026 Tix Ticketing
Hafnarborg
•
1 March
Sale starts
9 February 2026 at 12:00
(in 3 days)




Hljóðön: Fylling
Sunnudaginn 1. mars kl. 20 munu tónskáldin Lilja María Ásmundsdóttir og Pétur Eggertsson frumflytja nýtt verk sem þau hafa samið sérstaklega sem inngrip í yfirstandandi sýningu myndlistarmannsins Unu Bjargar Magnúsdóttur, Fyllingu, í aðalsal Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar, en tónleikarnir eru jafnframt lokahnykkur sýningarinnar. Lilja og Pétur munu koma til með að ferðast á milli staða innan sýningar Unu Bjargar þar sem nótur og hljóðfæri þeirra verða umbreytast í skúlptúra innan sýningarinnar. Viðburðurinn er hluti af tónleikaröð Hafnarborgar, Hljóðönum.
Aðgöngumiðar eru seldir í Hafnarborg: almennt miðaverð er 2.900 krónur og er verð fyrir eldri borgara og námsmenn 1.500 krónur. Húsið opnar kl. 19:30.
Hljóðön, tónleikaröð Hafnarborgar, er sérstaklega tileinkuð tónlist 20. og 21. aldar, þar sem einstök hugmyndaauðgi og listræn glíma tónskálda leiða áheyrendur inn á áður ókunnar slóðir en tónleikaröðin hefur verið hluti af dagskrá Hafnarborgar síðan 2013.
Lilja María Ásmundsdóttir, tónskáld, lauk B.Mus. prófi í píanóleik vorið 2016 frá Listaháskóla Íslands og meistaranámi í tónsmíðum frá City, University of London árið 2018. Í fyrra lauk hún doktorsnámi í tónsmíðum frá sama skóla. Lilja María vinnur oft með hljóðskúlptúra í bland við hljóðfæri í verkum sínum. Sumarið 2016 hlaut hún styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna til að þróa hljóð- og ljósskúlptúrinn Huldu undir handleiðslu Berglindar Maríu Tómasdóttur og Jóns Marinós Jónssonar, fiðlusmiðs. Verkefnið var eitt af fimm verkefnum tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Árið 2022 kom svo út platan Internal Human sem er samstarfsverkefni Lilju Maríu og dansarans Inês Zinho Pinheiro. Verkefnið var tilnefnt til Kraumsverðlaunanna og valið sem „Tilraun ársins“ af Morgunblaðinu. Lilja María er einnig hluti af listhópnum Hlökk ásamt Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur og Ragnheiði Erlu Björnsdóttur. Fyrsta plata þeirra, Hulduhljóð, hlaut Kraumsverðlaunin 2019 og var jafnframt tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins í opnum flokki.
Pétur Eggertsson, tónskáld, útskrifaðist með BA gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands 2018, og MA gráðu frá Mills College í Oakland, Californiu 2020. Við útskrift hlaut hann Margaret Lyon verðlaunin fyrir ágætis árangur í tónlistarnámi. Pétur vinnur í gegnum sjónlistir og gjörninga og er umbreyting hljóðs í gegnum handahófskenndar þýðingar í mismunandi miðla í brennidepli í verkum hans, auk þess sem hlutverk bæði flytjenda og áhorfenda er kannað og aukið. Með tónlist sinni varpar Pétur fram spurningum um þá menningu sem umlykur tónlistarflutning og leitar þar að hugmyndafræðilegu sambandi milli tónlistar og samfélags. Pétur gefur jafnframt út raftónlist undir nafninu Hjalti Kaftu, spilar á trommur með hljómsveitinni Skelkur í bringu og er annar helmingur teknófiðlutvíeykisins GEIGEN ásamt Gígju Jónsdóttur en saman hlutu þau Grímuverðlaunin 2023 fyrir tónlist ársins vegna sýningar þeirra Geigengeist en sýningin hlaut alls fimm tilnefningar til Grímunnar 2023 og þar af þrenn verðlaun.

