© 2026 Tix Ticketing

Salurinn
•
16 April
Ticket prices from
ISK 6,900




Alþýðutónlistarhópurinn Vinir og vandamenn, sem að megninu til samanstendur af afkomendum og vinum Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í Bæ, býður ykkur til notalegrar og hressilegrar samveru- og söngstundar.
Á tónleikunum munum við flytja lög af nýútkominni plötu okkar, Hve dátt er hér…, þar sem við pússum upp nokkrar af sjaldheyrðari perlum Oddgeirs, Ása og Árna úr Eyjum, í bland við þekkt og söngvæn Eyjalög og eitt eða tvö ný lög, og flytja þau eins og við sjáum fyrir okkur að Oddgeir, Ási, Árni og félagar hafi gert í hvíta tjaldinu forðum daga.
Við tökum okkur smá tíma í að skoða tilurð og bakgrunn laganna og rýna aðeins í textana, rækta með okkur þakklæti fyrir þann auð sem okkur var gefinn, og næra þannig okkar sameiginlegu Eyjarætur.
Eftir því sem á kvöldið líður munum við auka hlut ykkar áheyrenda og passa vel upp á það að hver einasti tónleikagestur fái góða útrás fyrir hina vel þekktu og óbrigðulu sönggleði Eyjafólks. Því tengt leggjum við það heimaverkefni fyrir alla tónleikagesti að læra fyrir tónleikana hið áður óútgefna þjóðhátíðarlag frá 1941, Dagur og nótt í Dalnum, svo þið getið nú örugglega trallað með okkur af hjartans lyst!
Hinn tónlistarlegi menningararfur Vestmannaeyja er einstakur. Lögin og textarnir eru órjúfanlega samofnir sögu Eyjanna og ljóslifandi heimildir um lífsbaráttuna, náttúruna, menninguna, sjómennskuna og litríka karaktera bæjarlífsins. Mörg þessara laga hafa öðlast landsfrægð og ódauðleika, en allnokkur fjöldi þeirra er lítt eða óþekktur, nema af örfáum eldri Eyjamönnum. Ef ekki verður brugðist skjótt við er hætt við að einhver þeirra hreinlega týnist og gleymist, sem yrði mikil synd.
Öllum ágóða af þessum tónleikunum verður varið til að kosta áframhaldandi vinnu Vina og vandamanna við varðveislu þessara sjaldheyrðari Eyjalaga. Með því að kaupa miða á tónleikanna leggur þú þannig þitt af mörkum til að varðveita um ókomna tíð þennan ómetanlega menningararf.

