Móðir Guðs og hirðir Íslands

Breiðholtskirkja

21 February

Ticket prices from

ISK 3,000

Móðir Guðs og hirðir Íslands

Á 15:15-tónleikum 21. febrúar 2026 flytja Cantores Islandiae ásamt hljóðfæraleikurum brot úr Þorlákstíðum, íslenskum tíðasöng til heiðurs Þorláki helga Skálholtsbiskupi, og fjölbreytta tónlist, íslenska og evrópska, til heiðurs Maríu guðsmóður.

Þorlákstíðir eru tíðagjörð sem sungin var til heiðurs Þorláki helga Þórhallssyni sem tekinn var í heilagra manna tölu fyrstur íslenskra manna. Tíðirnar eru einstakur menningararfur Íslendinga og bera vitni þeirri stöðu sem Þorlákur hafði í kaþólskri tíð. Handritið, sem var skrifað kringum árið 1400, er varðveitt á Árnastofnun í Reykjavík.

Á miðöldum blómstraði Maríudýrkun víða í Evrópu, ekki síst á 15. öld, og hún var hyllt í helgisiðum, myndlist og tónlist. Á Íslandi hafði María sérstaka stöðu í trúarlífi landsmanna. Maríukvæði og sálmar, bæði á latínu og íslensku, voru sungnir í klaustrum og kirkjum. Þótt Ísland væri fjarri háborgum kristinnar kirkju í Evrópu var Maríudýrkun hér svipuð og annars staðar og lifði góðu lífi fram að siðaskiptum.

Sönghópurinn Cantores Islandiae var stofnaður árið 2018 og leggur sérstaka áherslu á gregorssöng. Hópurinn tekur reglulega þátt í samstarfi við annað tónlistarfólk, til að mynda tónlistarhópinn Umbru, Schola Cantorum og Scandinavian Cornetts & Sackbuts. Síðsumars árið 2025 fór hópurinn í tónleikaferð til Noregs og Danmerkur þar sem Maríumessa eftir miðaldatónskáldið Guillaume de Machaut var flutt á fimm tónleikum. Í desember árið 2025 kom fyrsta hljómplata sönghópsins út með síðari aftansöng Þorlákstíða.

Almennt miðaverð er 4000 kr. og 3000 kr. fyrir aldraða, öryrkja og námsmenn. Frítt fyrir unglinga og börn í fylgd með fullorðnum.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger