© 2026 Tix Ticketing
Akralind 6, Kópavogi
•
18. - 20 February
Ticket prices from
ISK 14,900




ChatGPT námskeið með Stefáni Atla
Margfaldaðu afköstin með hjálp gervigreindar
Síðast seldist upp á undir viku, svo um að gera að hafa hraðar hendur.
Á þessu tveggja klukkustunda, lifandi og hagnýta námskeiði lærir þú að nýta ChatGPT til að einfalda dagleg verkefni, auka gæði vinnunnar og spara ótrúlegan tíma.
Námskeiðið hentar öllum – hvort sem þú starfar í þjónustu, markaðssetningu, skrifstofustörfum, stjórnunarstörfum eða einfaldlega vilt létta þér lífið.
Við förum yfir helstu aðgerðir ChatGPT og skoðum hvernig þú getur notað tæknina strax í eigin verkefnum. Þú færð einnig verklegar æfingar, raunhæf dæmi og skýrar aðferðir sem nýtast strax eftir námskeiðið.
Mælt er með að hafa síma með ChatGPT-appinu til að leysa verkefnin á staðnum.
Leiðbeinandi: Stefán Atli Rúnarsson – viðskiptafræðingur, sérfræðingur í markaðsmálum og áhugamaður um gervigreind. Stefán hefur kennt yfir 2000 Íslendingum að nota ChatGPT á einfaldan og árangursríkan máta.

