© 2025 Tix Ticketing
Tjarnarbíó
•
6 January
Ticket prices from
ISK 4,900




Raftónlistarkonan og klarínettleikarinn Bergþóra Kristbergsdóttir heldur útgáfutónleika á þrettándanum fyrir breiðskífuna sína Drýpur. Á tónleikunum kemur saman stór hópur flytjenda þar sem klarínett, strengir og raftónlist fléttast saman í dökkum og tilfinningaþrungnum hljóðheimi.
Drýpur er samtímatónlistarverk sem dregur upp innra landslag spennu og umbreytinga. Magnþrungið verk sem fer gegn hefðbundnum hátíðleika árstíðarinnar.
Forsala á númeraðri vínýlútgáfu hefst á tónleikunum. Stafræn útgáfa plötunnar kemur jafnframt út samdægurs á helstu streymisveitum.
Flytjendur og teymi:
Tónlist: Bergþóra Kristbergsdóttir
Bergþóra Kristbergsdóttir – klarínett
Edda Óskarsdóttir – klarínett
Hilma Kristín Sveinsdóttir – klarínett
Atli Snær Ásmundsson – rafmagnsbassi
Diljá Finnsdóttir – víóla
Eyja Ragnheiðardóttir – fiðla
Rut Sigurðardóttir – selló
Rún Árnadóttir – selló og kontrabassi
Hljómsveitarstjórnun: Ýmir Haukur Guðjónsson
Útsetningar: Bergþóra Kristbergsdóttir & Arnaldur Ingi Jónsson
Hljóðmaður tónleika: Alfreð Jóhann Eiríksson
Aðrir flytjendur: Hulda Ragnhildur Hjálmarsdóttir & Margrét Helga Snorradóttir
Grafísk hönnun: Hulda Sól Magneudóttir
Ljósmynd: Eva Schram
Útgefandi: Ásmundur Jónsson,
Smekkleysa S.M. ehf.

