Jólin alls staðar

Breiðholtskirkja

20 December

Ticket prices from

ISK 3,000

Jólin alls staðar – jólatónleikar með Silfurbjöllunum!

Silfurbjöllurnar málmblásarakvintett býður til fjölskyldujólatónleika í tónleikasyrpunni 15:15 í Breiðholtskirkju laugardaginn 20.desember kl 15:15!

Á tónleikunum spilum við þekkt jólalög bæði íslensk og erlend ásamt lögunum við jólatréð þar sem allir geta sungið með!

Velkomin að eiga huggulega og einstaklega jólalega stund með okkur í Breiðholtskirkju rétt fyrir jólin!

Silfurbjöllurnar voru stofnaðar haustið 2022 og voru þá kvartett skipaðar þeim Hönnuh O'Connor, Valdísi Þorkelsdóttur á trompeta Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur á básúnu og Ingibjörgu Azimu á bassabásúnu. Í haust bættist Anna Sigurbjörnsdóttir hornleikari í hópinn og er því kvartettinn orðinn kvintett!

Almennt miðaverð er 4000 kr. en 3000 kr. fyrir námsmenn, aldraða og öryrkja. Frítt er fyrir börn í fylgd með fullorðnum

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger